fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Glamúrfyrirsæta sakar A-Rod um framhjáhald: Grátbað hana um trekant – „Hann er klámhundur“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Þriðjudaginn 26. mars 2019 11:57

Hvernig bregst A-Rod við þessum ásökunum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska Playboy-fyrirsætan Zoe Gregory heldur því fram að Alex Rodriguez hafi haldið framhjá Jennifer Lopez. Hún segir að Alex, sem oft er kallaður A-Rod, hafi sent henni fjölmörg skilaboð þar sem hann bað hana til dæmis um að koma í trekant og sendi henni grófar myndir.

„J. Lo er stórkostleg og á þetta ekki skilið“

Zoe segir A-Rod hafa verið á eftir sér frá öðrum degi jóla í fyrra, þegar hún fékk fyrstu skilaboðin frá honum, og þar til 22. janúar. A-Rod bað Jennifer Lopez sex vikum seinna, eða þann 9. mars síðastliðinn.

Alvarlegar ásakanir.

Zoe segir að skilaboðasendingarnar hafi fljótt farið úr böndunum og að A-Rod hafi fljótlega beðið hana um að hitta sig í eigin persónu.

„J. Lo er stórkostleg og á þetta ekki skilið. Þegar hann var að undirbúa bónorðið var hann að biðja mig um kynlífsmyndbönd, heimta að við myndum sofa saman og biðja mig um að redda öðrum stúlkum með,“ segir Zoe í viðtali við The Sun.

„Ef hann er að gera þetta alveg þar til hann biður hennar er þetta ekki sanngjarnt,“ bætir hún við.

Sendi typpamyndir

Í meintum skilaboðum hrósar A-Rod Zoe fyrir vöxtinn og biður um myndbönd af henni. Þá spyr hann einnig um vinkonu hennar og veltir fyrir sér hvort þær tvær séu til í trekant.

„Er hún heit? Fyndin? Hve oft hefur þú sofið hjá henni?“ á A-Rod að hafa sent.

Þá segir Zoe að A-Rod hafi sent henni typpamyndir.

„Hann er klámhundur. Hann virðist vera þurfandi og graður maður,“ segir Zoe.

Jennifer og Alex eru nýtrúlofuð.

Ekki fyrsta sagan

Þetta er ekki fyrsta sagan um meint framhjáhald A-Rod sem kemur upp á yfirborðið. Nokkrum klukkustundum eftir að hann bað J. Lo var hann sakaður um að halda við fyrrverandi eiginkonu Jose Canseco, en þeir spiluðu saman hafnabolta fyrir Yankees. Það var Jose sjálfur sem tísti þessum ásökunum.

„Ég er að horfa á J. Lo senda Alex Rodriguez skilaboð en hún veit ekki að hann er að halda við fyrrverandi eiginkonu mína, Jessicu. Greyið stúlkan. Hún hefur ekki hugmynd um hvaða mann hann hefur að geyma,“ skrifaði Jose. Jessica hefur hins vegar neitað þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.