Ofurfyrirsætan Behati Prinsloo birti heldur betur eggjandi mynd á Instagram til að fagna fertugsafmæli eiginmanns síns, tónlistarmannsins Adam Levine, en hann átti afmæli þann 18. mars síðastliðinn. Behati birti myndina hins vegar um helgina.
„40 er bara tala en þú berð hana fjandi vel. Ég vakna á hverjum degi meira ástfangin af þér. Til hamingju með afmælið lífið mitt. Þú ert svo svalur, þú ert svo svalur, þú ert svo svalur,“ skrifar Behati við myndina af henni og Adam í ástarleikjum á strönd.
Adam og Behati gengu í það heilaga í júlí árið 2014 og eiga tvær dætur saman; Dusty Rose, tveggja ára og Gio Grace, þrettán mánaða.