Kourtney Kardashian heldur áfram að kynna nýju lífsstílssíðuna sína, Poosh.
Sjá einnig: Kourtney Kardashian fer úr öllum klæðum til að kynna dularfullt nýtt fyrirtæki: „Þetta er mál fyrir FBI“
Í þetta skipti deildi hún mynd af sér nakinni í freyðibaði.
Sérðu eitthvað athugunarvert við myndina?
Það hafa átt sér stað rosaleg photoshop mistök. Horfðu betur á myndina.
Sérðu ekki enn þá? Horfðu á vinstri fótlegg Kourtney. Vinstri fótleggurinn er eitthvað svo lítill og langur og í vandræðalegri stöðu. Fylgjendur Kourtney voru hneykslaðir:
„Af hverju er vinstri fóturinn svona mikið lengri en hinn,“ „hvar er vinstra lærið hennar“ og „þessi fótleggur gefur mér hroll,“
skrifuðu fylgjendurnir undir myndina.
Kourtney hefur ekki enn eytt myndinni né ummælum við myndina. Annaðhvort hefur hún ekki enn tekið eftir þessu eða er bara alveg sama!