Fyrrum raunveruleikastjarnan, Evelyn Cormier, vakti athygli dómara í áheyrnaprufu fyrir American Idol. Þátturinn var sýndur í gærkvöldi.
Evelyn Cormier, 19 ára, var í fimmtu seríu af þáttunum 90 Day Fiancé á TLC. Þá var hún átján ára og trúlofuð Vázquez Zermano, 27 ára. Þau eru nýbúin að fagna eins árs brúðkaupsafmæli.
Evelyn komst áfram í American Idol en hún fékk einnig mjög sérstakt og fallegt hrós frá Katy Perry.
„Bókstaflega ein af uppáhalds röddum sem ég hef nokkurn tímann heyrt,“ sagði Katy Perry.
„Þú ert með hljóm sem er þinn,“ sagði Lionel Richie. „Ég elska andrúmsloftið. Ég veit ekki hvað þú ert að gera, en hvað sem það er þá er það stórkostlegt.“
Að lokum gaf Katy Perry ungu söngkonunni góð ráð: „Evelyn veldu réttu lögin. Þú ert uppáhalds röddin mín.“
Sjáðu áheyrnaprufuna hér að neðan.