Gíraffinn April fæddi gíraffakálf í dýragarðinum í Harpursville í New York-fylki í Bandaríkjunum á laugardag, en fæðingin var sýnd í beinni útsendingu á YouTube. Talið er að rúmlega þrjú hundruð þúsund manns hafi fylgst með.
Kálfurinn kom í heiminn klukkan 12.45 og var staðinn upp klukkan 13.27. Klukkan 13.51 var kálfurinn farinn að nærast hjá móður sinni.
April er sannkallaður stjörnugíraffi þar sem rúmlega 230 milljónir manna fylgdust með henni yfir sjö vikna tímabil árið 2017 áður en hún fæddi kálfinn Tajiri.
Nýi kálfurinn er hennar fimmti og verður efnt til nafnasamkeppni bráðlega til að finna nafn á litla kraftaverkið. Dýragarðurinn opnar 1. maí og þá verður hægt að berja nýja kálfinn augum.