Ofurfyrirsætan Irina Shayk virðist ekki taka orðrómnum um leynilegt samband Bradley Cooper og Lady Gaga alvarlega ef marka má nýjustu myndirnar sem náðust af henni þegar hún spókaði sig í sólinni á Miami ströndinni.
Bradley Cooper og Irina Shayk eiga saman eina dóttur og hefur fyrirsætan ekki látið orðróminn fá á sig þrátt fyrir endalausar fréttir þess efnis að eitthvað hljóti að vera í gangi á milli leikaraparsins.
Bæði Lady Gaga og Bradley Cooper hafa neitað öllum fréttum þess efnis að um framhjáhald sé að ræða en grunurinn varð þó enn sterkari þegar Lady Gaga sleit trúlofun sinni við Christian Carino.
Irina lætur það þó ekkert á sig fá og nýtur lífsins brosandi í agnarsmáu bikiníi sem sýnir vel í hversu góðu formi fyrirsætan er.
Það er þó ein spurning sem við veltum fyrir okkur… Hver er þessi ónefndi vinur sem er með henni?