Óskarsverðlaunahátíðin var haldin með prompt og prakt í nótt vestan hafs. Stjörnurnar prýddu rauða dregillinn í glæsilegum klæðum. Hátíðin var eins og venjulega sýnd í beinni en það var margt sem gerðist í nótt sem hefur farið fram hjá mörgum.
Hér eru nokkur mögnuð augnablik frá Óskarnum sem þú misstir örugglega af.
Melissa McCarthy og Glenn Close hlægja saman. Þær voru báðar tilnefndar sem besta leikkonan.
Bestu aðal- og aukaleikarar Óskarsins 2019 saman komnir á mynd.
Rami Malek datt eftir að hafa tekið á móti Óskarnum.
Sjúkraliðar mættu.
Jimmy Chin fagnar með Jason Momoa eftir að hafa unnið Óskarinn fyrir bestu heimildarmyndina.
Frances McDormand óskar Olivu Colman til hamingju.
Lady Gaga grætur eftir að hafa unnið verðlaun fyrir besta upprunalega lagið.
Gary Oldman óskar Rami Malek til hamingju með verðlaunin.
Lady Gaga drekkur kampavín.
Melissa McCarthy vel klædd áður en hún steig á svið og afhenti verðlaun fyrir bestu búningahönnun.
Regina King stillir sér upp með Óskarinn sinn.
Hellen Mirren og Sarah Paulson í stíl í bleikum kjólum.
Kacey Musgraves bíður spennt baksviðs.
Michelle Yeoh og Pharrell Williams baksviðs áður en þau stigu á svið.
Alfonso Cuarón tekur utan um Angelu Bassett eftir að hafa unnið verðlaun fyrir bestu erlendu myndina fyrir Roma.
Bradley Cooper horfir fallega á Lady Gaga meðan hún syngur.
Þessi flutningur var gjörsamlega rafmagnaður.
Maya Rudolp, Tina Fey og Amy Poehler hafa gaman baksviðs.
Jennifer Lopez lagar varalitinn.
Bradley Cooper kyssir Lady Gaga á kinnina.