fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Var á föstu með hjónum – Er nú einhleypur aftur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Mánudaginn 18. febrúar 2019 12:05

Frankie er á lausu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dansarinn Frankie Grande er á lausu eftir ansi áhugavert samband við hjónin Daniel Sinasohn og Mike Pophis. Í viðtali við Us Magazine segist hann hafa fengið mikla athygli frá karlmönnum eftir að hann sagði hjónunum upp.

„Valentínusardagurinn var áhugaverður,“ segir dansarinn, sem er 36 ára gamall. „Þetta er áhugavert. Þegar ég varð einhleypur fékk ég svo mörg skilaboð frá strákum sem ég hafði ekki talað við svo lengi. Þeir sögðu til dæmis: Elskan, hvað ertu að gera í dag? Hvað segirðu? Og ég hugsaði: Guð minn góður, hvað er að gerast? Þannig að ég held að fólk finni lyktina af því þegar ég er einhleypur.“

Frankie segist vera tilbúinn að fara á stefnumót aftur eftir sambandsslitin og leitar að hinum eina rétta.

„Þetta verður ár ástarinnar. Ég er viss um það.“

Fréttir um samband Frankies við hjónin Daniel og Mike birtust á síðari hluta seinasta árs, en þegar að fjölmiðlar komust á snoðir um sambandið hafði það varað í þrjá mánuði.

„Ég er mjög þakklátur fyrir síðasta sambandið mitt. Ég þroskaðist mikið en á sama tíma virkaði það ekki. Ég er mjög glaður að við ákváðum að enda það á vinalegum nótum. Og að við getum verið vinir áfram. Það er mikilvægt,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Truflar KR-inga ekkert að spila í Laugardalnum – „Fyrstu tveir leikirnir hafa bara verið heimaleikir“

Truflar KR-inga ekkert að spila í Laugardalnum – „Fyrstu tveir leikirnir hafa bara verið heimaleikir“
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Voru gapandi hissa yfir sjónvarpinu í vikunni – „Ég veit ekki hvað fer í gegnum hausinn á þér“

Voru gapandi hissa yfir sjónvarpinu í vikunni – „Ég veit ekki hvað fer í gegnum hausinn á þér“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hrafnkell telur að margir sérfræðingar hafi „prjónað yfir sig“

Hrafnkell telur að margir sérfræðingar hafi „prjónað yfir sig“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.