Sylvía Ósk Rodriguez var að skipta um tryggingafélag og sótti um líf- og sjúkdómatryggingu. Hún er menntaður leikskólakennari, tveggja barna móðir og almennt mjög hraust og við góða heilsu. Tryggingarfélagið sagði henni að hún þyrfti að borga hærri tryggingar vegna þyngdar sinnar.
„Ég fékk SMS þar sem stóð að ég fengi álag á tryggingarnar vegna ÞYNGDAR! Tíu þúsund kall á ári takk fyrir. Þegar ég bað um rök fyrir þessu álagi fékk ég pistil um tengsl BMI, offitu og alvarlegra sjúkdóma tengda offitu. Tryggingafélagið ákvað sem sagt að mitt heilsufar væri slæmt út frá tveimur tölum á blaði, hæð og þyngd,“ segir Sylvía Ósk og bætir við: „Ég bað þá vel að lifa og fann mér annað tryggingafélag.“
Sylvía Ósk segir að talan á vigtinni segi ekki allt um heilsufar fólks og að hún hafi alltaf verið þung þrátt fyrir að vera í góðu formi.
„BMI segir því ekkert um mitt heilsufar og ég hélt hreinlega að það væri almennt ekki notað lengur því þetta er úrelt tól. En nei,“ segir Sylvía Ósk.
Sylvía Ósk deildi myndinni upphaflega í Facebook-hópnum Motivation stelpur. Við myndina skrifa margar konur sem hafa lent í því sama hjá öðrum tryggingarfélögum. Þær hneyksla sig margar á því að BMI stuðullinn sé enn notaður til að mæla heilsufar.
Hvað segja lesendur DV – Hafið þið lent í sömu reynslu?