fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Dóttir Hönnuh ákvað að sýna öllum fingurinn í brúðkaupsmyndartökunni

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 8. febrúar 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allir foreldrar sem hafa farið með börnin sín í myndatöku, eða jafnvel bara reynt að taka myndir af börnunum sjálf, hafa líklega upplifað það hversu erfitt það er að ná góðri mynd af öllum á sama tíma. Sérstaklega þegar ung börn eru með sem eiga það til að byrja að gretta sig eða fíflast í miðri myndatöku.

Hin þrjátíu og þriggja ára gamla Hannah Early komst aldeilis að því þegar þriggja ára gömul dóttir hennar, Maddison, ákvað að sýna ljósmyndaranum hvað hún hafði lært stuttu áður.

Hannah sem er fjögurra barna móðir hafði skipulagt myndatöku fyrir alla fjölskylduna á brúðkaupsdegi hjónanna sem var í nóvember á síðasta ári. Þegar myndatakan var byrjuð tók Hannah eftir því að dóttir hennar var í sífellu að gefa ljósmyndaranum fingurinn. Augnablikið varð því ógleymanlegt, en ekki eins og Hannah hafði séð fyrir sér í upphafi.

„Þetta var fallegur dagur og ég var svo spennt fyrir brúðkaupinu. Ég hafði ráðið ljósmyndara til þess að koma og taka myndir af okkur öllum,“ segir Hanna í viðtali við Metro.

„Þarna var athöfninni lokið og við ákváðum að stíga til hliðar til þess að taka nokkrar myndir af fjölskyldunni. Allt í einu lyfti hún fingrinum upp til þess að sýna öllum þetta nýja „bragð“ sem hún var ný búin að læra. Hún hafði lært þetta nokkrum dögum áður en vissi auðvitað ekki meininguna á bak við þetta. Það eina sem hún vissi var að hún fékk mikil viðbrögð frá fólki. Allir gestirnir sem stóðu og fylgdust með myndatökunni fóru allt í einu að hlæja og ég mun aldrei gleyma þessu.“

Ljósmyndarinn eyddi myndunum af stúlkunni, en til allrar hamingju hafði systir Hönnuh ákveðið að taka myndir sjálf af atvikinu.

Segir Hannah að Maddison sé loksins hætt að gefa fingurinn og að hún sé virkilega fegin að þetta tímabil sé búið hjá dóttur sinni.

„Hún gerði þetta reglulega í heilan mánuð. Þetta var fyndið en ég er glöð að hún er hætt. Það var erfitt að hlæja ekki, en ég vildi ekki að hún héldi að þetta væri í lagi. Ég þurfti alltaf að snúa mér frá henni til þess að hlæja svo hún sæi mig ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“