„Ég á því miður ekki mynd af listaverkinu en ég skil ekki af hverju það eru ekki til einnota rúmföt árið 2019,“ segir Anna Karen Sigurðardóttir í samtali við blaðakonu.
Í morgun vaknaði Anna Karen sem er tveggja dætra móðir og penni á síðunni Hún.is við dóttur sína vera að dást að listaverki sem hún hafði nýlega lokið við.
„Lítil falleg augu og stolt bros mættu mér í morgun þegar ég dæsti og spurði hvað í ósköpunum hafði gerst! Litla stolta stúlkan brosti og sagði skýrt: „Mála“ á meðan hún dáðist að listaverkinu sínu. Rimlarúmið var skreytt vel og vandlega með saur og brún handaför settu nýjan lit á vegg og nálæg húsgögn,“ segir Anna Karen sem hikar ekki við að deila réttri mynd af foreldrahlutverkinu.
Dóttir Önnu, Hrefna Þórunn Ottósdóttir sem er ný orðin tveggja ára gömul hafði tekið upp á því að maka kúk yfir allt.
Þetta er þó ekki í fyrsta skiptið sem dætur Önnu taka upp á svona uppátæki, móður sinni til mikillar gleði, en Heba Lind Ottósdóttir eldri dóttir Önnu settist nýlega ofan á vaskinn á Ikea eldhúsi sínu og gerði þarfir sínar þar.
Anna hlær þó að uppátækjum dætra sinna og slær þeim upp í létt grín þegar hún kallar dætur sínar Argintætu og Tætibusku.
„Þarna er hún bókstaflega að kúka í vaskinn á Ikea eldhúsinu sínu.“
„Annars er ógeðslega erfitt að vera svekkt yfir morgunverkunum þegar að maður býr til svona sjúklega falleg börn.“
Anna setur reglulega inn skemmtilegar myndir og færslur um móðurhlutverkið inn á Instagram og er hægt að fylgjast með henni þar undir notandanafninu: kareninasig