fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Bráðfyndin mynd af heimilislífinu: „Tveir stórir púðar-Fjórir Labradorar-Einn gamall köttur = Einfalt reikningsdæmi“

Aníta Estíva Harðardóttir
Fimmtudaginn 7. febrúar 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samskipti hunda og katta hafa lengi verið til umfjöllunar. Reglulega eru gerðar bíómyndir um líf þeirra saman og hefur það iðulega verið sett fram þannig að kettirnir séu þeir sem ráða yfir hundunum.

Þessi tvö gæludýr eru algeng á heimilum hérlendis og á hún Delia Howser fimm labradora og tvo ketti.

„Chaplin er mikill höfðingi, allra manna hugljúfi og alveg einstakur kisi,“ segir Delia í samtali við Bleikt.

Blaðakona hafði samband við Deliu eftir að hafa séð skondna mynd af gæludýrunum hennar þar sem greinilega má sjá hver það er sem ræður á heimilinu.

„Tveir stórir Costco púðar. Fjórir Labradorar. Einn gamall köttur. Einfalt reikningsdæmi,“ segir Delia á síðunni Spottaði Kött.

Á myndinni má sjá köttinn Chaplin njóta lífsins á einum stórum púða á meðan tíkurnar Aska, Alba, Aþena og Salka hjúfra sig saman á sambærilegum púða.

„Rakkinn Púki og Nelson kisustrákur voru á kantinum. Nelson er sömuleiðis einstakur. Hann er var villikettlingur sem fannst hálf frosinn fyrir nokkrum árum í bátalóninu hér í Hafnarfirði. Svo eru allir hundarnir mínir yndislegir félagar. Sáu alfarið um að koma mér í gegnum lyfjameðferð við krabbameini. Drógu mig út í göngu alveg sama hvað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Hildur, Rán og Ásta hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

Hildur, Rán og Ásta hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur