fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024

Svandís gerði sér óraunhæf markmið og glímdi við sjálfshatur: „Ég ætlaði að verða mjó“

Aníta Estíva Harðardóttir
Miðvikudaginn 6. febrúar 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir fimm árum síðan var Svandís Þóra Kristinsdóttir orðin rúmlega 120 kíló, átti við mikil andleg vandamál að stríða og glímdi við svo lélega sjálfsmynd að hún líkir því við sjálfshatur.

„Ég var búin að vera í bölvuðu veseni með sjálfa mig og gat ekki sofið á nóttunni vegna kvíða. Ég var með svo lélega sjálfsmynd að það má líkja því við sjálfshatur. Ég ákvað að ég þyrfti að gera eitthvað í mínum málum því ég var orðin eitthvað um 120 kíló og ég byrjaði fyrst á skyndilausninni. Borðaði sjeik í morgunmat og hádegismat og kjúklingasalat í kvöldmat. Ég ætlaði nú aldeilis að verða mjó og flott á eins stuttum tíma og ég gæti,“ segir Svandís í einlægri færslu sinni á Vynir. Þetta var árið 2014 en fljótlega gafst Svandís upp því henni fannst hún ekki vera að grennast nógu hratt.

Svandís var komin með ógeð á því að gefast alltaf upp, fara illa með sjálfa sig og að vilja stanslaust passa í eitthvað ákveðið líkamsform. Hún rakkaði sjálfa sig niður þegar hún leit í spegilinn og fannst aldrei neitt vera nógu gott. Einnig hafði hún gert óraunhæf markmið til sín og vorkenndi sjálfri sér mikið. Um áramótin 2015 ætlaði Svandís aftur að taka sig á.

„Núna ætlaði ég sko að verða mjó! Byrjaði á Carb-nite og fór og hljóp spretti svona 1-2 sinnum í viku á morgnanna. Át purusteik og bernes í hádeginu alla daga,“ segir Svandís sem hugsar til baka með velgju.

Fékk viðurkenningu fyrir að léttast um fimm kíló

Stundaði líkamsrækt af röngum forsendum

Með þessu tókst Svandís að losa sig við tíu kíló sem komu ekki til baka og fór hugsun hennar til sjálfs síns batnandi með hverjum deginum. Svandís skráði sig á Yoga námskeið og þar kviknaði áhugi hennar um að byggja upp sjálfsmynd sína.

„Ég var komin með ógeð á líferni mínu og því að ég stundaði líkamsrækt af röngum forsendum. Ég var komin með ógeð á því að stara á vigtina og að gefast upp. Árið 2015 léttist ég heilan helling. Fæðið mitt saman stóð eiginlega af mat úr vinnunni og fiski sem ég borðaði heima. Ég átti ekki vigt og var ekkert að spá í því hvað ég væri þung. En ég er nokkuð viss um að ég hafi verið léttari en ég er núna. Ég var samt svo aum og í ömurlegu formi. Reykti allavegana pakka af sígarettum á dag og hafði gert síðan ég var 17 ára. Mikil drykkja einkenndi þetta tímabil og ömurlegur lífsstíll.“

Þann fyrsta janúar árið 2017 ætlaði Svandís að taka málin í sínar hendur og fara að æfa eins og brjálæðingur.

„Ég ætlaði að verða mjó og geta spókað mig í sólinni á tenerife um sumarið. Ég æfði og æfði eins og brjálæðingur og tók klemma samhliða því (töflur sem eru notaðar sem astmalyf fyrir hesta en gefur víst auka brennslu ef mannfólk tekur þær). Guð minn almáttugur. Ég léttist um einhver átta kíló frá janúar til apríl. Í páskafríinu tók ég mér pásu og svo fannst mér ég ekkert þurfa að byrja aftur því ég væri hvort eð er ekkert mjó.“

Þarna var Svandís léttari en stundaði óheilbrigðan lífsstíl

Notaði stórhættulegt lyf til að reyna að grennast

Svandís var komin með meiðsli í axlir og hné vegna ofreynslu ásamt því að klemminn hafði þurrkað upp liðina hennar.

„Æðislega heilbrigt er það ekki? Enn og aftur var ég að reyna að gera eitthvað í mínum málum á kolröngum forsendum. Þið sem lesið þetta, aldrei nota klemma, það getur haft stórhættulegar afleiðingar sem eru lengi að jafna sig!!“

Frá apríl og fram í janúar árið 2018 æfði Svandís ekki neitt en hún hafði þó ávallt þá hugmynd á bak við eyrað að hana langaði til þess að verða heilbrigð.

„Ég vildi geta gert hluti eins og að hlaupa, gera armbeygjur og upphífingar. Geta gert þessa hluti sem gætu reynst manni vel í daglegu lífi og ef svo óheppilega vildi til að maður væri í lífshættu. Það væri glatað að hanga fram af fjallsbrún og geta ekki híft sig upp til að bjarga sínu eigin lífi, já ég veit frekar djúpt.“

Breytir ekki öllu á einum degi

Í október árið 2017 byrjaði Svandís í meðferð hjá sálfræðingi sem átti eftir að hafa góð áhrif á sjálfsmynd hennar og löngun til þess að vera heilbrigð bæði andlega og líkamlega.

„Í sálfræðimeðferðinni fékk ég áhuga á allskonar andlegum og félagslegum pælingum, fór aðeins að lesa mig til og svona um „mind tricks“ eða einhverskonar sjálfshjálp. Í desember ‘17 sá ég svo manneskju á Instagram eða Snapchat ræða um það af hverju fólk dettur út úr heilbrigðum lífsstíl – byrja of hratt með óraunhæf markmið, ætla að breyta öllu á einum degi, berja sjálfan sig niður fyrir mistök, gefast upp vegna þess að óraunhæfu markmiðunum var ekki náð með einum andardrætti og fleira. Mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki nafngreint manneskjuna því ég man ekkert hver það var. Þessi manneskja kveikti á einhverri peru hjá mér í sambandi við þetta og auðvitað á hún stórt hrós skilið. En ég lagði það ekkert sérstaklega á minnið þá, því ég vissi ekki að ári seinna yrði ég henni svona ævinlega þakklát.“

Í janúar á síðasta ári ákvað Svandís því að byrja að hreyfa sig og stunda heilbrigðari lífsstíl á öðrum forsendum en nokkurn tíma áður. Til þess að verða heilbrigð.

„Ég ákvað að byrja hægt og hreyfa mig tvisvar sinnum í viku og borða aðeins hollar. Reyna að sleppa sætindum og kannski alveg hvítu brauði. Búa mér til nesti í vinnuna og hætta að falla í þá gryfju að þurfa að kaupa mér eitthvað tilbúið út í búð, það endar sjaldnast vel,“ segir Svandís og hlær.

Nær loksins að stjórna ofátinu

„Í febrúar byrjaði ég svo í polefitness sem kveikti áhugann hjá mér á því að verða sterkari. Hægt og rólega fór ég að taka fleiri og fleiri æfingar í viku. Bara vegna þess að áhuginn kviknaði og mér fór að þykja gaman að æfa. Bæði fara í ræktina og mæta í polefitness tímana. Ég byrjaði að prófa jóga og allskonar skemmtilega tíma og fékk líka áhugann á því að verða liðug og hafa þol. Leið og beið og kom þá að því alræmda páskafríi. Ég var mjög meðvituð um að árið áður hefði ég dottið út í páskafríinu og passaði vel að það myndi ekki gerast í þetta skiptið. Ég tók æfingu alla dagana í páskafríinu, nema á páskadag. Bara til þess að passa upp á að detta ekki út. Í stuttu máli hef ég verið að æfa síðan. Reyna að velja hollari kostinn og hef náð mjög vel að stjórna ofátinu sem ég átti mjög erfitt með árin á undan.“

Í dag er Svandís aðeins sex kílóum léttari en þegar hún hóf breyttan lífsstíl sinn fyrir ári síðan en segir hún muninn á sjálfri sér gríðarlegan.

„Munurinn á mér andlega og líkamlega er gígantískur. Ég reyni að láta vigtina ekki hafa áhrif á mig, reynir frekar að sjá árangurinn í spegli. Þegar ég byrjaði að hreyfa mig í janúar árið 2018 var ekki til arða af vöðvum á mér og öll þyngdin mín var fita. Ég veit fyrir víst að vöðvar eins og rassvöðvinn er mjög þungur og hann hefur örugglega fjórfaldast á þessum tíma. Vöðvar eru mikið þyngri en fita og það væri svo óraunhæft að sækjast endalaust eftir því að léttast á vigtinni. Ég borða venjulegan heimilismat og notast ekki við neina kúra. Ef ég ætla að leyfa mér að fá mér pizzu eða nammi eða álíka mjög óhollan mat þá reyni ég alltaf að fara á æfingu fyrr um daginn og borða það óholla svo um kvöldið.“

Mikilvægt að hata ekki líkama sinn

Með því að tala um reynslu sína vonast Svandís til þess að geta opnað augu fólks, jafnvel þó það væri bara ein manneskja.

„Ef þetta hjálpar einni manneskju að breyta hugarfari sínu og forsendum þess að æfa og borða hollt þá er takmarki mínu náð. Að ein manneskja ákveði að breyta lífsstílnum sínum til frambúðar til þess að verða heilbrigð á sál og líkama í stað þess að falla inn í einhverja fegurðarstandarda. Að hreyfa sig af því að maður elskar líkamann sinn og vill allt það besta fyrir hann. Ekki af því að maður hatar hann eins og hann er.“

2014 – 2018

Að lokum tekur Svandís fram nokkur góð ráð sem hún hefur lært á vegferð sinni og vill deila áfram. Tekur hún þó fram að hún sé ekki lærð en að þessi ráð hafi gagnast henni vel.

  • Gera hlutina af réttum forsendum.
  • Rækta gott samband við sjálfan sig – margir glíma við sjálfshatur án þess að fatta það.
  • Sjálfsást – vilja allt gera fyrir þína sál og þinn líkama.
  • Forðast að hugsa of mikið um hvað aðrir eru að afreka og gera.
  • Passa upp á andlega líðan og leita sér hjálpar ef hún er slæm.
  • Byrja á hausnum áður en maður tæklar restina!
  • Hlusta á líkamann og ofgera sér ekki.
  • Byrja hægt og byggja sig upp – Róm var ekki byggð á einum degi.
  • Í okkar samfélagi er mikil óþolinmæði – alltaf – alls staðar – verum þolinmóð við líkamann okkar og höldum áfram! Ekki gefast upp ef það gengur ekki allt eins hratt og þú myndir vilja.
  • Finndu hreyfingu sem hentar þér og þér finnst skemmtileg.
  • Byrja hægt að breyta mataræðinu – skipta út fyrir hollari kosti.
  • Láta skyndikúra alveg vera – þeir munu ekki endast þér alla ævi.
  • Ekki hafa of mörg boð og bönn til að byrja með.
  • Ekki berja þig niður fyrir að detta úr af sporinu – njóttu þess og njóttu þess að koma þér aftur á teinana!
  • Mundu að þetta er ekki keppni við neinn annan – einungis keppni við sjálfa/n þig að vera betri en í gær.
  • Prufaðu að hugsa 10 ár fram í tímann – hugsaðu um hamingjusama, andlega og líkamlega hrausta týpu af sjálfum þér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ráðleggur Chelsea að taka Varane frítt í sumar

Ráðleggur Chelsea að taka Varane frítt í sumar
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Þörf á annarri umferð í biskupskjöri

Þörf á annarri umferð í biskupskjöri
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Leikur ÍA og Fylkis færður inn í höll – Enginn leikur á grasi í þriðju umferð

Leikur ÍA og Fylkis færður inn í höll – Enginn leikur á grasi í þriðju umferð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hafa engan áhuga á því að kaupa hann í sumar

Hafa engan áhuga á því að kaupa hann í sumar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.