fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Alda Karen fer á náttfötunum á djammið: „Gildir það sem furðulegt?“ 

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 1. febrúar 2019 11:09

Alda Karen Hjaltalín , Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alda Karen Hjaltalín fer út á lífið í silki náttfötum, svo segir í nýjasta tölublaði Mannlífs þar sem Alda Karen fjallaði um fatastíl sinn

Alda Karen Hjaltalín er nafn sem lesendum ætti að verða orðið kunnugt eftir umræður síðustu vikna. Hún er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fyrirlesari sem hefur notið mikilla vinsælda fyrir fyrirlestra og lífsspeki hennar um svokallaða lífslykla, sem hún segir nýtast í baráttunni gegn þunglyndi og leiða til betra lífs.  Hún varð umdeild á dögunum eftir að halda því fram að þunglyndissjúklingum nægði að telja sjálfum sér trú um að þeir væru nóg.

Blaðamaður Mannlífs leitaði þó ekki til Öldu til að fá upplýsingar um lífslyklana hennar, heldur til að fá að gægjast fataskáp hennar. Alda Karen þykir hafa látlausan en töff fatasmekk og ræddi við Mannlíf um uppáhalds fatnaðinn.  Þegar kemur að fatavali segist Alda sækja sér innblástur til Hollywood-stjarna á borð við Blake Lively og Söruh Jessicu Parker.

„Svo sá ég Söruh Jessicu Parker einu sinni í New York og hún er algjör gyðja í eigin persónu svo ég lít reglulega á Instagram-ið hennar eftir innblæstri.“

En furðulegustu fatakaupin, segir hún  að  hafi verið náttföt úr silki. Náttföt eru sennilega ósköp hversdagsleg kaup öllu að jafna en Alda Karen brúkar þau ekki aðeins til að sofa í  heldur fer hún jafnframt í þeim út að skemmta sér.

„Gildir það sem furðulegt? Sarah Jessica Parker gerði það samt fyrst svo ég kenni henni um. Þetta er bara svo þægilegt. Maður dressar náttfötin bara upp með hælum og fallegu skarti og skellir sér út.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.