fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hannes: Hún lokar augunum og stynur

Ragnheiður Eiríksdóttir
Fimmtudaginn 20. september 2018 22:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er 25 ára gaur og á kærustu. Við erum búin að vera saman í nokkra mánuði og það gengur mjög vel. Við erum að spá í að byrja í sambúð fljótlega og þess vegna er ég að analísera allt í sambandinu þessa dagana því ég vil vera algjörlega viss. Það er næstum allt fullkomið, hún er falleg og skemmtileg og lætur mér líða mjög vel. Ég elska hana mjög mikið og mundi alls ekki vilja vera með neinni annarri.

Það er samt eitt atriði í kynlífinu sem ég er óöruggur með. Hún lokar alltaf augunum og stynur ferlega mikið. Mér finnst alltaf eins og hún sé að hugsa um einhvern annan gaur þegar hún gerir þetta. Ég hef spurt hana en hún segir að það sé alls ekki þannig, að sér þyki bara gott að gera þetta. Ég get samt ekki hætt að hugsa um þetta og er farinn að ímynda mér alls konar náunga sem hún er kannski að hugsa um, þar á meðal mína bestu vini. Ég skammast mín eiginlega fyrir að trúa henni ekki en veit ekki hvernig ég á að komast út úr þessu. Geturðu hjálpað?

Kveðja,

Ég

Halló Hannes

Veistu, það er alls ekkert óvenjulegt við það að kona loki augunum og stynji í kynlífinu. Sumum konum finnst betra að loka úti umheiminn til að geta betur einbeitt sér að því sem er að gerast í líkamanum og njóta kynlífsins og augnabliksins til fulls. Stundum er það jafnvel forsenda þess að konan geti fengið fullnægingu. Öndun, einbeiting og rétt áreiti er það sem skiptir flestar konur máli þegar kemur að því að fá fullnægingu. Þá er mikilvægt að snípur eða aðrir mikilvægir líkamspartar séu snertir á réttan hátt og að áreiti sem getur truflað sé útilokað. Þetta getur verið áreiti eins og hljóð úr umhverfinu (t.d. bílahljóð, barnahljóð, útvarpsfréttir eða hvað sem er annað) eða eitthvað sem sést, s.s. loftið í svefnherberginu sem þarf að mála eða meira að segja ástmaðurinn sjálfur. Hljómar kannski einkennilega en sumar konur eru ferlega viðkvæmar.

Ég held að þú ættir að treysta orðum kærustu þinnar. Ef hún segist ekki vera að hugsa um annan mann er engin ástæða fyrir þig að rengja það. Samband ykkar virðist traust og gott og hún hefur líklega enga ástæðu til að ljúga að þér.

Ég verð samt að minnast á að draumórar í kynlífinu eru afskaplega algengir bæði hjá konum og körlum og fyrir suma geta passlega dónalegar hugsanir verið bráðnauðsynlegar til að ná hámarksnautn, þ.e. fullnægingu. Stundum eru órarnir aðferð til að ná fyrrnefndri einbeitingu og loka sig inni í kynnautninni langt frá öllu daglegu amstri og áhyggjum. Ég er viss um að þú sjálfur hefur einhvern tíma látið hugann reika í kynlífinu… en það er ekki þar með sagt að þú elskir ekki kærustuna þína og það þýðir heldur ekki að þín heitasta ósk sé að vera á öðrum stað með annarri konu.

Með kærri kveðju, Ragga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Hefur ítrekað reynt að taka samtalið en því er alltaf hafnað

Hefur ítrekað reynt að taka samtalið en því er alltaf hafnað
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.