Líklega hafa flest allir þeir sem nota samfélagsmiðilinn Instagram mikið, fundið sjálfan sig í þeim sporum að vera að skoða myndirnar úr lífi annara og fyllst afbrýðisemi og/eða furðað sig á því hversu fullkomið líf allir virðast eiga á miðlinum.
Það eru þó líklega miklar líkur á því að flest allir fegri örlítið (eða mikið) myndirnar áður en þeim er deilt. Til þess er hægt að nota hina ýmsu „filtera“ og jafnvel gengur fólk svo langt að sviðsetja myndirnar alveg frá A-Ö.
Geraldine West frá Þýskalandi ákvað nýlega að hefja verkefni sem hún kallar „Instagram á móti raunveruleikanum“. Þar tekur hún myndir af hlutunum eins og þeir eru í raun og veru og svo hvernig þeir gætu verið settir upp á Instagram. Bored Panda birti myndirnar og ef þú skoðar í gegnum þær munt þú átta þig á því hversu kjánalegt þetta getur í raun og veru verið.