Nú er ég í fæðingarorlofi og maður getur orðið mjög hugmyndasnauður og hreint út sagt latur að útbúa sér eitthvað að borða. Tala nú ekki um ef það á að vera næringarríkt. Ég vinn í eldhúsi og hef mikinn áhuga á eldamennsku. Ég er alltaf að leita mér af nýjum, góðum og fljótlegum uppskriftum sem ég get skellt i hérna heima.
Ég útbjó mér þennan rétt fyrir helgi og hann kom svo rosalega á óvart að ég verð að deila uppskriftinni með ykkur. Rétturinn er LKL/KETO vænn.
Hráefni:
1 vel þroskað avacadó
3 beikon sneiðar
20 gr spínat
3 gr ferskur chili
60 gr rifinn ostur
Smjör til steikingar
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð :
Fyrst og fremst byrja ég á því að kveikja á ofninum, 200°c undir og yfir.
Næst steikti ég beikonið og skar það niður í litla strimla. Það er auðvitað hægt að nota beikon kurl. Svo skellti ég spínatinu og chiliinu á pönnuna með smjörinu og saltaði (auðvitað misjafnt hvað fólk vill mikið salt og gott að muna að beikonið er vel saltað). Svo blandaði ég ostinum, spínatinu, chiliinnu og beikoninu saman. Næst tók ég avacadóið, skar í tvennt og fjarlægði steininn (ef steinninn er rosa lítill þá mæli ég með því að skafa örlítið innan úr avacadóinu). Svo fyllti ég avacadóið með blöndunni, kryddaði eftir smekk og bakaði í 20 mín. Ég kveikti svo á grillinu í 5 mín bara til að fá ostinn örlítið gylltan en alls ekki nauðsynlegt. Svo er bara að taka það úr ofninum og njóta.
Hægt er að fylgjast með Laufeyju á Instagram undir notendanafninu: lobbzter
Höfundur greinar er Laufey Inga og birtist færslan upphaflega á síðunni Vynir.is