Ahh.. Jólamyndatökur. Hver elskar þær ekki? Örvæntingarfullir foreldrar sem smala öllum saman, reyna að fá alla til þess að brosa og vera með opin augun á sama tíma. Grátandi ungabörn og unglingar í fílu. Hver kannast ekki við þetta?
Sama hvort fólk hafi gaman af myndatökum eða ekki, þá eru þær, svona eftir á að hyggja alltaf virkilega skemmtilegar. Það er nefnilega svo dýrmætt að eiga þessi augnablik á filmu. Hvort sem það vandræðalega við myndina sé það að herðapúðar hafi verið í tísku, unglingurinn hafi verið fúll eða pabbinn eyðilagði allar myndirnar með grettum þá er alltaf gaman að geta litið nokkur ár aftur í tímann og minnst stundarinnar.
Því fór Bleikt á stúfana og fann nokkrar einstaklega vandræðalegar jólamyndir sem teknar hafa verið í gegnum tíðina: