Timberlake er búinn að vera á tónleikarferðalagi síðan í mars til að fylgja eftir breiðskífu sinni Man of the Woods. Hann gerði grein fyrir þessu á Instagram í gær.
„Hæ öll, ég er viss um að þið hafið heyrt af því að ég er búin að fresta nokkrum tónleikum vegna skaddaðra raddbanda. Raddböndin mín eru á batavegi en hafa ekki náð sér að fullu enn sem komið er svo lænarnir mínir vilja að ég hvíli röddina mína. Þeir hafa beðið mig umað bíða með allan söng þar til í næsta mánuði. Mér þykir þetta afar leitt, ég vil komast aftur á sviðið og er að gera allt sem í mínu valdi stendur til að geta það sem fyrst. Þakka ykkur fyrir skilninginn. Ég sé allar færslunar ykkar og kann að meta stuðninginn og ástina. Ég hlakka til að snúa aftur sterkari en áður. Upplýsingar seinna um frestuðu dagsetningarnar“
https://www.instagram.com/p/BrCApusBvEF/?utm_source=ig_web_copy_link