Það hefur færst í aukana hjá mörgum Íslendingum að versla vörur á netinu. Oftar en ekki finnst fólki það betra þar sem að á netinu er meira úrval, varan er send heim að dyrum, þú sparar þér tíma og svo heppilega vill til að verðmiðinn virðist oft vera mikið lægri á netinu heldur en í búðunum.
Það hafa þó ekki allir verið jafn heppnir þegar kemur að því að fá rétta vöru í hendurnar. Og þó, fólk virðist oft fá rétta vöru, hún er bara ekki alveg eins og sú sem var á myndinni þegar þú pantaðir. The Sun tók saman lista af vörum sem fólk hefur fengið sendar heim sem hafa ekki alveg mætt væntingum þeirra: