fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Bryndís ákvað snemma að fara aldrei í þungunarrof: „Hvenær er fóstur talið líf? Fyrir mér þá er fóstrið líf um leið og það fer að skipta sér“

Aníta Estíva Harðardóttir
Mánudaginn 12. nóvember 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Bryndís Steinunn var tíu ára gömul las hún grein eftir konu sem fjallaði um það hvaða áhrif þungunarrof hafði haft á hana. Umfjöllunin hafði djúp áhrif á Bryndísi og frá þeirri stundu ákvað hún að hún myndi aldrei fara í þungunarrof.

„Ég sem betur fer stóð aldrei í þeim sporum að þurfa að taka þá ákvörðun þar sem ég átti ekki einu sinni að geta eignast börn. Flestir hafa ekki bara skoðun á [þungunarrofi] heldur mjög sterka skoðun. Ég ítrekað það að það sem ég skrifa hér er einungis mín skoðun og hvað mér finnst. Ég dæmi engan sem tekur þessa ákvörðun, við erum ekki eins og aðstæður geta verið misjafnar. Ég efast um að einhver fari í þessa aðgerð án þess að finnast það erfitt á einhvern hátt,“ segir Bryndís í einlægri færslu sinni á síðunni Amare þar sem hún ræðir um skoðun sína á þungunarrofi.

„Núna árið 2018 hefur verið fjallað að lengja heimild [til þungunarrofs] í 22 vikur. Ég fæ bara pínu illt í hjartað við þessa tilhugsun því ég man hvernig það var að vera komin 20 vikur á leið og sjá litla krílið í sónar í fyrsta sinn. Finna fyrir hreyfingum þess og vitandi að þarna væri ótrúlegt kraftaverk að gerast, sem í mínu tilfelli er í alvörunni kraftaverk þar sem ég átti ekki að geta átt börn. Ég elskaði litlu baunina mína frá því að ég vissi að hún væri til staðar. Frá því að krílið var ekkert annað en fruma sem var búin að skipta sér. Ég fylgdist stanslaust með á netinu, viku fyrir viku hvað var að gerast og fannst allt svo merkilegt og dásamlegt.“

Meðganga Bryndísar var langt frá því að vera dans á rósum en hún var veik allan tímann.

„Ég elskaði samt tilhugsunina um að vera að verða mamma.“

5 vikna fóstur

5 vikna fóstur

„Svona leit strákurinn minn út þegar ég fór í snemmsónar, komin ekki nema fimm vikur og stærð fósturs er víst eins og sesamfræ, oggulítið, en hjarta og æðakerfi eru farin að myndast á þessum tíma. Ég hafði aldrei fundið fyrir þessari tilfinningu áður að elska eitthvað sem ég þekkti ekki, hafði ekki séð og vissi lítið sem ekkert um. Allt sem ég gerði snerist um þessa litlu mannveru sem var orðin hluti af mér. Ég veit að á þessum tíma er fátt sem minnir á barn en ef maður pírir augun svolítið og starir er ég viss um að hægt sé að sjá haus og hendur, allavega geri ég það.2

Segir Bryndís næstu vikur meðgöngunnar snúa að því að móta barnið, þá myndist andlit, hendur og fætur, fingur og tær.

„Bein, vöðvar, lungu og heili er allt að myndast hratt og verða að veruleika. Mikil hreifing er á fóstrinu þótt móðir finni það ekki strax. Áfram heldur allt að myndast og stækka og í lok tólftu viku ætti fóstrið að vera eins og lime að stærð og lítur út eins og manneskja.“

12 vikna fóstur

12 vikna fóstur

Þegar liðið er inn á annað tímabil meðgöngunnar segir Bryndís konur fara að finna meira fyrir hreyfingum og séu farnar að þekkja inn á fóstrið.

„Á öðru tímabili meðgöngu fer barnið að æfa sig í að gretta sig, sjúga puttana, hreyfa hendur og fætur og stundum er eins og verið sé að æfa parkour eða einhverskonar bardagaíþrótt þarna inni. Talið er að barnið sé farið að heyra á þessu tímabili og því lesa margir fyrir bunguna, syngja eða einfaldlega tala við hana. Kynfæra hafa myndast og líffærin farin að vinna á fullu. Á þessu tímabili máttu enn fara í þungunarrof.“

22 vikna fóstur

Segist Bryndís ekki geta skilið það. Hún veltir fyrir sér hvar mörkin liggja á milli fósturs og barns.

22 vikna fóstur

„Hvenær er fóstur talið líf? Fyrir mér, mín skoðun og þið megið alveg vera ósammála, þá er fóstrið líf um leið og það fer að skipta sér. Margir tala líka um að þetta sé líkami konunnar og þar af leiðandi sé það hennar að ákveða. En ef það er málið, af hverju var það þá svona erfitt fyrir mig að fá að fara í fullt legnám fyrir tveimur árum? Ég meina mitt leg, minn líkami.“

Bryndís segist hafa þurft að kveljast í tólf ár vegna þess að henni var neitað um legnám og að síðustu fjögur árin fyrir aðgerðina hafi hún grátbeðið læknana þar sem hún átti orðið erfitt með að taka þátt í einföldustu athöfnum.

„Ég skil líka ekki af hverju réttur föðurins sé enginn. Við vitum það öll að það þarf tvo til þess að búa til barn. Ég las einmitt grein fyrir nokkrum árum þar sem faðir skrifaði um sína reynslu þegar hans fyrrverandi fór í þungunarrof og grátbað hann hana um að gera það ekki. Hann þráði ekkert meira en að eignast barnið. Svar hennar var: „Minn líkami, mín ákvörðun.“ Meðan á aðgerðinni stóð, sat hann frammi og leið vítiskvalir og enn mörgum árum síðar er hann enn að hugsa um barnið sem hann fékk aldrei að sjá, halda á, knúsa og kyssa. Á hinn bóginn eru líka til börn sem fæðast inn í þennan heim þar sem þau eru ekki elskuð, og allt of mörg eiga ekki heimili eða það sem verra er, eiga heimili sem veitir þeim ekki skjól og vernd.“

Bryndís gerir sér grein fyrir því að umfjöllunarefnið sé erfitt og að fólk hafi sterkar skoðanir varðandi það.

„En mig langaði bara svo að koma því frá mér hvernig mér líður. Mér finnst erfitt að sætta mig við þetta, kannski af því að ég gat ekki átt fleiri börn, kannski af því sem ég hef lesið og heyrt um, hver veit. Dæmum samt aldrei manneskju í þessum sporum þar sem allt sem við gerum er eitthvað sem við sjálf þurfum að standa skil fyrir og taka afleiðingum gjörða okkar. Hvort sem það er þungunarrof eða bara að birta þetta.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur H. Garðarsson er látinn

Guðmundur H. Garðarsson er látinn
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta