Það er mikið af fólki sem gengur ansi langt til þess að láta laga útlit sitt á einn eða annan hátt. Nýjasta æðið sem fólk sækist nú í er að fara til húðflúrara og láta lita pokana undir augunum í sama tón og restin af andlitinu.
Með þessari aðferð getur fólk losnað við dökka hringi sem eiga það til að myndast í kringum augun. Samkvæmt In The Know hefur húðflúrarinn Rodolpho Torres frá Brasilíu sérhæft sig í aðferðinni í yfir tíu ár núna og flykkist fólk nú til hans að láta laga baugana.
Torres byrjar á því að finna út nákvæman húðlit fólks og svo flúrar hann bauga þeirra í sama lit. Flúrið tekur um mánuð að jafna sig og segir fólk útkomuna ótrúlega. Torres flúrar einnig yfir gömul ör og slit.
https://www.facebook.com/InTheKnowInnovationAOL/videos/787944264870155/