Hin tuttugu og tveggja ára gamla Kendall Jenner heldur áfram að draga alla athyglina að sér. Kendall birti í gærkvöldi myndir af sjálfri sér á Instagram í bleikum latex sundbol sem vakið hafa mikla athygli.
Myndirnar eru teknar af ljósmyndaranum Sasha Samsonova og fyrir utan latex sundbolinn var Kendall klædd í skó frá Jimmy Choo og sokkabuxur frá Louis Vuitton. Kendall hefur verið mikið á milli tannana á gagnrýnendum undanfarið þar sem hún birti í síðustu viku mynd af sér með greiðslu í hárinu sem svipaði til svokallaðs „afró“ sem lagðist ekki vel í marga.
Á nýju myndunum situr hún fyrir með hundi af tegundinni Doperman Pincher og samkvæmt Metro er ástæðan fyrir gagnrýninni á þær myndir sú að fyrr á þessu ári er talið að hundurinn á myndunum hafi bitið barn.
Það er þó varla hægt að segja að Kendall láti þessa gagnrýni á sig fá og virðist hún ætla að halda áfram að koma fólki í opna skjöldu sama hvað um hana er sagt.