fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Kelerí, harka og hávaði: Þetta er það sem íslenskar konur sakna úr kynlífi sínu

Ragnheiður Eiríksdóttir
Laugardaginn 13. október 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lengi getur gott batnað, sagði einhver einhverntíma, en það á sannarlega við um kynlíf. Gott kynlíf getur verið notaleg rútína, en líka síbreytilegt og skapandi. Óskalistar okkar í kynlífinu eru líklega eins mismunandi og þeir eru margir, en misræmi í þeim er eitt af því sem getur gert sambönd svo ósköp erfið. Það er í besta falli pirrandi að þurfa stöðugt að slá af kröfum og óskum í rúminu – en á sama tíma er mikilvægt að við treystum okkur til að tjá okkur um og orða óskirnar.

Ragga Eiríks fór á stúfana og heyrði í nokkrum íslenskum konum um hvers þær sakna helst í rúminu. Hér eru svörin:

„Ég sakna þess að geta ekki haft eins hátt og ég vil. Fullt hús af börnum og það allt. Ekki það að ég vilji endilega öskra eitthvað en góðar stunur, hlátur og annað er ómissandi. Annars er bara geggjað gaman!“

„Fleiri sleiki! Djúpu kossana vantar alveg núorðið í kynlífið mitt. Það er einsog kúrfan á lengd tíma sem eytt er í sleik (upphitun) fari óhnikað niðurávið eftir því sem lengist í sambandinu.“

„Harka. Já ég vil að hann taki aðeins á mér svo að ég finni fyrir kröftunum sem búa í þessum dásamlega líkama. Hann er þó á annarri skoðun og finnst bara óþægilegt og asnalegt að vera með einhver læti í rúminu.“

„Munngælur eru ekki oft á dagskrá hjá okkur. Kannski er sökin mín líka, því ég hef ekkert sérstaklega gaman af því að totta hann. En ég vilti óska þess að hann færi niður á mig oftar.“

„Kynlíf á morgnana. Við vorum dugleg við það áður, en núna skríða börnin upp í á morgnana, og oft sefur eitthvert þeirra á milli okkar. Það truflar kynlífið verulega.“

„Húmorinn er farinn og ég sakna hans. Við vorum í upphafi sambandsins miklu léttari í lund og hlógum heil ósköp í rúminu. Núna 10 árum síðar er allt orðið svo alvarlegt.“

„Kelerí. Það er eins og hann geti varla snert mig án þess að fá stinningu og við kelum aldrei án þess að samfarir fylgi. Ég vil geta hnoðast og kelað og knúsast án þess að fara alla leið.“

„Tilbreyting almennt. Við erum búin að vera saman í fimmtán ár og kynlífið er orðið algjör rútína. Ég veit að þetta er klisja og ég veit að við eigum bæði sök. En ég veit líka að ef við gerum ekkert í þessu er bara tímaspursmál hvenær annað okkar eða bæði fara að leita annað.“

„Harða tippið hans. Maðurinn minn er með æðislegt tippi, en hann er orðinn 55 ára og kominn með stinningarvandamál. Ég er að reyna að fá hann til að taka stinningarlyf, en hann hefur ekki viljað, finnst það eitthvað hallærislegt. Ég held samt áfram að reyna því ég elska að fá hann grjótharðan inn í mig.“

„Ég sakna vandræðalega fálmkennda káfsins undir fötin. Kela í drasl í fötunum, í sófanum og afklæðast í gjörningnum. Ekki alltaf stemmarinn að vera kominn úr fötunum þegar allt byrjar. Þarf að bæta úr þessu!“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.