Þeir sem starfa við að sauma og útbúa sérstaka felubúninga fyrir veiðimenn, hermenn og fleira fólk sem þarf á sérstökum dulbúningi að halda í starfi sínu og leik hafa eytt miklum tíma í það að rannsaka og hanna búningana fyrir hverjar aðstæður fyrir sig.
Það er því sérstaklega gaman að því þegar fólk lendir í því að vera óvart dulbúið í feluliti, jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því. Bored Panda tók því saman fullt af myndum af fólki og öðrum hlutum sem féllu svona vel inn í umhverfi sitt: