„Brjóstamjólk hættir aldrei að vera góð fyrir okkur og svo snýst þettaaðallega um þægindin og nálægðina.“
Segir tuttugu og sjö ára gamla heimavinnandi húsmóðirin Amy Hardcastle sem hefur haldið brjóstagjöf fimm ára gamals sonar síns við öll þessi ár.
Amy segist vilja sýna fólki að það er eðlilegt fyrir börn að vera á brjósti eins lengi og hægt er. Gefur hún syni sínum brjóst á meðan þau liggja nakin saman í baði og segir hún auðveldara að gefa eldra barni brjóst þar sem hún getur útskýrt nákvæmlega fyrir honum hvernig hann á að drekka. Hvetur hún fleiri mæður til þess að gefa barni sínu brjóst, sama hver aldur barnsins sé.
Þegar Max, sonur Amy fæddist fannst henni ekki jafn þægilegt að gefa honum eins og henni þykir núna. Henni fannst það óþægilegt fyrst en fljótlega fór hún að verða öruggari og fannst hún geta gefið brjóst á almannafæri.
„Ég hef gefið Max brjóst núna í fimm ár og hann fær að drekka núna nokkrum sinnum í viku. Hvorugt okkar hefur tekið ákvörðun um að hætta strax. Ég hef reynt að útskýra að þrátt fyrir að þetta sé ekki samfélagslega eðlilegt hér, þá sé þetta ekki rangt. Að gefa brjóst er algjörlega rétt þar sem líkami minn heldur áfram að búa til mjólk til þess að næra barnið mitt. Um leið og þú hefur náð tökunum á brjóstagjöf þá er þetta bara spurning um að halda því áfram eins lengi og það gengur upp fyrir ykkur bæði. Þegar hann var yngri þá gaf ég honum brjóst á almannafæri en í dag þá vill hann það sjaldan. Núna er það alltaf heima,“ segir Amy í viðtali við Metro.
Max borðar eðlilegar máltíðir eins og hvert annað barn en hann fær að drekka brjóstamjólk þegar hann vill.
„Það er ekkert mál fyrir mig að gefa honum að drekka á daginn svo ég mun halda þessu áfram þangað til að hann segir stopp.“