fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

10 skotheld þrifaráð fyrir heimilið

Mæður.com
Fimmtudaginn 6. september 2018 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

  1. Límrúlla – Notaðu límrúllu til þess að taka ryk af lömpum, borðum, sófum, gardínum og þar sem þú getur. Rykið festis við límrúlluna en þegar þú notar fjaðurkúst eða tusku ertu oft að dusta rykinu í loftið sem sest svo aftur á húsgögnin.
  2. Kaffipokar -Notaðu kaffipoka til að þrífa glugga og spegla til þess að koma í veg fyrir rákir. Blandaðu 1/4 edik í 3/4 vatn, spreyjaðu aðeins á gluggann eða spegilinn og notaðu svo kaffipoka til að þurrka.
  3. Matarsódi -Stráðu smá matarsóda í íþróttaskóna eftir æfingu til að „fríska“ aðeins upp á lyktina, og á meðan þú ert að því prófaðu þá líka að strá smá íþróttatöskuna.
  4. Stíflueyðir -Önnur not fyrir matarsóda, þegar þú tekur eftir að niðurfallið sé aðeins farið að stíflast, sturtaðu þá hálfum bolla af matarsóda í það og hálfum bolla af ediki. Settu svo blauta tusku yfir á meðan lausnin freyðir, bíddu svo í 5 mínútur og helltu þá heitu vatni ofan í. Virkar fullkomlega!
  5. Tannkrem -Áttu skó sem voru hvítir og eru orðnir grá brúnir? Skrúbbaðu þá með tannkremi! Þú getur líka notað tannkrem til þess að þrífa kranann við vaskinn.
  6. Þrífa blandarann -Fylltu blandarann af vatni, settu svo smá uppþvottalögur í hann. Kveiktu svo á blandaranum um í nokkrar sekúndur, skolaðu svo með heitu vatni og volia! Blandarinn hreinn.
  7. Að halda hvítum þvotti hvítum -Til þess að halda hvítum þvotti hvítum, skelltu þá smá matarsóda með í þvottavélina.
  8. Brenndir pottar eða pönnur? -Það hafa örugglega allir lent í því að gleyma sér aðeins þannig sósan brann aðeins við í pottinum. Til þess að þrífa það: Hálf fylltu pönnuna eða pottinn með vatni, bættu svo 1dl af edik í, leyfðu suðunni að koma upp og taktu af hellunni. Bættu svo um 2 matskeiðum af matarsóda í og leyfðu blöndunni að kólna, þá er ekkert mál að þrífa brenndu sósuna burt!
  9. Katta eða hundahár? Þetta vildi ég að ég hefði vitað áður en við losuðum okkur við gamla sófann okkar! Til þess að ná hárunum frá gæludýrunum úr sófanum, bleyttu uppþvottahanska og renndu svo með honum yfir, hárin ættu að festast við eins og segull.
  10. Tyggjó í föt -Til þess að ná tyggjó úr fötum, skelltu þá flíkinni í frysti í nokkra klukkutíma. Það er MIKIÐ auðveldara að ná frosnu tyggjói úr flík!

Færslan er skrifuð af Sögu Dröfn og birtist upphaflega á Mæður.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Enn einn leikmaðurinn bætist á meiðslalista Chelsea – Frá út tímabilið

Enn einn leikmaðurinn bætist á meiðslalista Chelsea – Frá út tímabilið
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.