fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Þrjú ráð sem gætu bjargað kynlífinu

Ragnheiður Eiríksdóttir
Laugardaginn 25. ágúst 2018 19:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er heilmikil vinna að viðhalda neistanum en margir eru tilbúnir að leggja hana á sig í stað þess að rifta samningnum og snúa sér annað. Hér eru fimm ráð.

Er svefnherbergið orðið ósexí?
Þú hefur örugglega oft heyrt og lesið að svefnherbergið eigi bara að vera fyrir svefn og kynlíf. Samt eru flestir með alls konar tæknigræjur uppi í rúmi og margir horfa á sjónvarp fyrir svefninn. Það er erfiðara að stinga upp á kynlífi ef makinn er límdur við tölvuskjá horfandi á Game of Thrones. Prófaðu að gera svefnherbergið að tæknilausu svæði, fáðu þér gamaldags vekjaraklukku, loftaðu út daglega og haltu rúmfötunum ferskum og hreinum. Prófaðu svo að skipuleggja stefnumót við makann inni í rúmi – já skipuleggja, þú gætir meira að segja búið til viðburð á Facebook fyrir ykkur tvö/tvær/tvo.
Er lífið að sliga þig?
Skyldur í vinnu og á heimili geta verið sligandi – sérstaklega ef þú ert í krefjandi starfi og kannski með nokkur börn á heimilinu. Stöðugt áreiti gegnum samfélagsmiðla, tölvupóst, skilaboð, börn, maka sem heimtar mat á borðið, þvottavél sem malar gerir það að verkum að lítil orka er eftir til að njóta ásta. Ef líf þitt er svona getur verið alveg nauðsynlegt að bóka tíma til að rækta kynlífssambandið við makann.

Ertu kannski lasin/n?
Ýmsir sjúkdómar geta haft áhrif á kynlöngun og kynhvöt. Sumir þeirra eru þess eðlis að fólk getur gengið með þá ógreinda langtímum saman. Sjúkdómar eins og þunglyndi, járnskortur, síþreyta, vefjagigt, sykursýki og háþrýstingur eru meðal þeirra sem geta haft áhrif á líðan, orku og ekki síst kynhvöt. Ef þú hefur einhvern tíma upplifað langvarandi verki veistu líklega að verkir stroka út allt sem heitir gredda. Ef þú þjáist af óútskýrðri þreytu eða verkjum gæti verið sniðugt að kíkja í heimsókn til heimilislæknisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.