fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Ragna skrifar harðort bréf til ráðherra: „Ég fékk aðstoð hjá ljósmóður við að labba, skipta á barninu og mér!“

Aníta Estíva Harðardóttir
Miðvikudaginn 4. júlí 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragna Sif Pétursdóttir tekur undir kjarabaráttu ljósmæðra með því að skrifa einlægt og harðort bréf um fæðingu fjórða barns hennar.

 

Eftir fjórðu fæðingu Rögnu missti hún mikið blóð, var mjög veikburða og gat hún ekki gengið í tvo daga.

„Ég fékk aðstoð hjá ljósmóður við að labba, skipta á barninu og mér! Einmitt!“ Segir Ragna sem segist í samtali við blaðamann hafa skrifað færsluna beint frá hjartanu.

„Svo var það hún María sem er á þessari mynd sem tók drenginn minn í tvær nætur svo ég fengi að sofa! Óumbeðin takk. Þau voru að kúra og spjalla á meðan ég svaf. Kom og lagði hann á brjóst og tók hann svo aftur. Þær eru nefnilega að vinna á nóttinni líka sko! Gerir ráðherra sér grein fyrir því?“

Ragna segir aðstoð Maríu hafa bjargað lífi hennar og þakkar hún henni fyrir allt.

„Í þessari stöðu var þetta það BESTA sem gat komið fyrir mig. Ég grét af glaði þegar enginn sá. Þær eru frá sinni eigin fjölskyldu til þess að hugsa um og bjarga öðrum. Á launum eins og þær væru að vinna 9-14. Það að þessar konur séu ekki metnar af verðleikum er mér FULLKOMLEGA óskiljanlegt. Ég ætla ekki að nefna hér ALLA fyrirmenn þessarar elítu sem þrífst hér á landi í skjóli vina, fjölskyldutengsla og forstjóra sem fá spikfeitar launahækkanir trekk í trekk að því er virðist.“

Ragna segist vera virkilega reið yfir ástandinu og lýsir yfir fullum stuðningi sínum við ljósmæður í þeirra kjarabaráttu.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Fjölskyldufaðirinn lést í sumarfríi – Rangt lík kom heim í kistunni – „Hvar er faðir minn?“

Fjölskyldufaðirinn lést í sumarfríi – Rangt lík kom heim í kistunni – „Hvar er faðir minn?“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert