Ég elska að skoða og grúska í uppskriftum í bókum og á netinu og geri mikið að því. Ein af mínum uppáhalds matarbloggurum er Fredrikke Waerens . Ég fann þessa uppskrift einmitt þar og ég get fullyrt það að þetta sé besta ostakaka sem ég hef smakkað, hún er meira að segja betri en uppáhalds karamellu ostakakan mín á Cheesecake factory. Ég lofa þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessa.
Botn
250g Digestive kex
120g Smjör, bráðið
1. Setjið kexið í matvinnsluvél/blandara og malið fínt
2. Bræðið smjörið og blandið saman við kexmylsnuna.
3. Setjið bökunarpappír í 23cm form og þrýstið kexblöndunni í formið. Kælið
Ostakakan
1/2l Rjómi
400g Rjómaostur
120g Flórsykur
1 msk Vanillusykur
1 msk Sítrónusafi
2 pk Tvöfalt Daim
1. Þeytið rjómann og setjið til hliðar.
2. Þeytið saman rjómaost, flórsykur, vanillusykur og sítrónusafa.
3. Bætið söxuðum daimbitum saman við ásamt þeytta rjómanum.
4. Hellið yfir kexbotninn og kælið í nokkrar klukkustundir.
Karamellan
400g ljósar karamellur (ég notaði Freyju)
1dl rjómi
smá sjávarsalt
1. Setjið karamellur í pott ásamt rjómanum og bræðið saman.
2. Bætið smá salti saman við.
3. Skreytið kökuna með 1 pk af tvöföldu Daimi og hellið karamellusósunni yfir.
4. Setjið afgangs karamelluna í könnu og berið fram með kökunni.
Færslan birtist upphaflega á Lady.is