Sæl, Ragga. Ég er rúmlega fertug og það er ekki í raun fyrr en núna að ég er farin að leyfa mér að vera ég sjálf í kynlífi. Ég held að ég eigi meira inni, ef svo má að orði komast. Þess vegna ætla ég að koma til þín á námskeiðið Konur og kynlíf á þessu ári.
En að málinu: Ég og maðurinn minn stundum gott og fjölbreytt kynlíf þó svo að inn á milli komi daufir kaflar. Ég er búin að lesa greinarnar þínar um swing og er nokkuð spennt fyrir heimsókn í slíkan klúbb. Það vill svo vel til að ég og maðurinn minn erum að fara til Amsterdam og við erum byrjuð að ræða hvort við eigum að stíga þetta skref. Okkur finnst margt spennandi í þessum efnum en líka eitt og annað sem hræðir okkur, enda er þetta skref út fyrir þægindarammann. Núna eftir að ég las skrifin þín færist ég nær hugmyndinni, sérstaklega vegna þess að hingað til hef ég ekki vitað hvert við ættum að leita en ég ímyndaði mér líka að þetta væri mögulega sóðalegt.
Kveðja, Halla.
Kæra Halla
Takk fyrir frábærar spurningar og vertu velkomin á námskeið hjá mér. Næstu dagsetningar fyrir Konur og kynlíf verða auglýstar í ágúst.
Það er greinilegt að áhugi á lífsstílnum leynist víða meðal íslenskra góðborgara. Fjöldi Íslendinga á swing-samfélagsvefnum SDC hefur rokið upp úr öllu valdi.
Þið ráðið alveg með hverjum þið stundið kynlíf og getið afþakkað allt sem stendur til boða. Fólk sem stundar þessa senu er vant því að fá neitun og móðgast ekki. Það er ekkert að því að mæta á svæðið eingöngu til að upplifa stemninguna og kynorkuna í loftinu, fá að ganga um meðal fáklæddra og eiga samskipti við fólk. Pör mæta líka til að stunda kynlíf saman, jafnvel með áhorfendur, eða meðal annarra para sem líka eru að stunda kynlíf. Þetta fer allt eftir smekk og því sem ykkur finnst þægilegt.
Pör sem vilja stunda kynlíf með öðrum hafa ýmsa möguleika til að láta það rætast. Margir kunna best við að byrja á spjalli við barinn, eða í setustofu, ef vel fer á með fólki má svo stinga upp á að færa partíið yfir á leiksvæðið. Ef þið eruð tvö í leik á opnu svæði og sjáið álitlegt par nálgast með bros á vör og lostafullt blik í augum gæti verið viðeigandi að senda þeim spurnarbendingu með höfði eða höndum, bjóða þeim þátttöku.
Ef þið sjáið ómótstæðilegt par í leik og langar að taka þátt en náið ekki augnsambandi, má tylla sér á rúmbríkina og strjúka handarbaki spurnarlega um læri eða upphandlegg. Ef svarað er með brosi, eða kolli er kinkað, er málið að kasta sér í leikinn. Ef höndin þín er hins vegar færð í burtu af líkamshlutanum þýðir það venjulega að nærveru þinnar í leiknum sé ekki óskað.
Gestir nota bæði tal og samskipti án orða til að tjá sig, en sú meginregla gildir að þú dembir þér ekki í hrúgu nakinna, eða stingur líkamshluta inn í líkamsop án þess að leyfi hafi verið veitt.
Þið setjið ykkar reglur um smokka, hvort þið notið þá í samförum eða líka við munngælur. Eins og þú eflaust veist getur þú smitast af herpes þrátt fyrir smokkanotkun – þá er ágætt að muna eftir því að flestir fullorðnir einstaklingar bera annaðhvort Herpes 1 eða 2 veiruna í sér, þó að margir hafi aldrei fengið einkenni. Að mínu mati mætti alveg tóna niður dramatíkina í umræðu um kynfæraherpes – óþægilegt vissulega í þeim tilfellum sem útbrot birtast, en við fyrstu einkenni má taka lyf sem stytta óþægindatímann, svo að þetta þarf ekki að vera mikið meira mál en að fá ennisholubólgu.
Þið eruð fullorðið fólk og þurfið að vega og meta þetta sjálf!
Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni, Hamraborg 11 raggaeiriks@gmail.com – www.raggaeiriks.com