Þetta er ein af mínum uppáhalds uppskriftum til þess að elda þegar ég er ein heima með stelpurnar þar sem þetta er svo ótrúlega fljótlegt, auðvelt, mjög gott og svo er alltaf til afgangur til þess að eiga í hádeginu daginn eftir.
Það sem ég nota er:
Ef ég kaupi ekki tilbúin kjúkling þá byrja ég á því að skera kjúkling í stóra bita og steikja kjúklinginn. Ég smyr sýrðum rjóma (líka hægt að nota rjómaost) í botninn á eldföstu móti og set tortillur yfir, sker kjúklinginn í minni bita og laukinn. Svo set ég helminginn ofan á tortillurnar og helli salsa sósu yfir og endurtek svo, tortillur, kjúklingur, laukur og salsa og set svo rifinn ost og inn í ofn á 200 í ca 10-15 mín. Ég set svo jalapenos, snakk og sýrðan rjóma ofan á.
Uppskriftin birtist upphaflega á Öskubuska.is