Chis Ivery, eiginmaður Ellen Pompeo, konunnar sem leikur aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Grey’s Anatomy, segir í samtali við Us Weekly ekki horfa á þáttinn.
„Ég horfði einu sinni mikið á hann en þá vissi ég ekki að hún ætti elskhuga,“ segir Chris og hlær. „Ég myndi ekki segja að ég væri afbrýðisamur. Ég er mjög sjálfsöruggur en þetta er vandræðalegt. Hún er að leika en núna er hún komin með nýjan elskhuga og ég þekki hann,“ segir Chris. Bleikt ætlar ekki að upplýsa um nýja kærasta Meredith Grey í þáttunum til að eyðileggja ekki neitt fyrir sjónvarpsáhorfendum.
Chris segist ekki vilja horfa á senur þar sem eiginkona hans lætur vel af öðrum mönnum.
„Ég held að það gæti orðið vandræðalegt.“
Chris og Ellen giftu sig árið 2007 og eiga dæturnar Stellu, níu ára og Siennu, fjögurra ára, og soninn Eli, tveggja ára.