Harper Beckham, 7 ára, er yngsta barn Beckham hjónanna. Öll fjölskyldan mætti á tískusýningu Victoriu á sunnudaginn. Þau sátu að sjálfsögðu í fremstu röð og hliðin á þeim var engin önnur en Anna Wintour, ritstjóri Vogue. Anna Wintour er einnig þekkt fyrir sína klassísku hárgreiðslu.
Það er svipur með Harper og Önnu, það vantar bara sólgleraugu á Harper.
Þarna eru þær alveg eins. Victoria Beckham deildi þessari mynd af Harper á Instagram. „Tíska“ skrifaði Victoria með myndinni.
David Beckham grínaðist með líkindin á Instagram.