Tónleikagestir voru slegnir þegar rapparinn Drake bauð stúlku upp á svið og byrjaði að kyssa hana og strjúka á óviðeigandi máta. Myndband náðist af atvikinu, sem átti sér stað í maí árið 2010 í tónleikahúsinu Ogden Theatre í Colorado, en upphaflega var það fjarlægt af veraldarvefnum og birtist aftur á Twitter nú á dögunum. Óhætt er að segja að netverjar hafa farið ófögrum orðum um rapparann í kjölfarið.
Drake var 23 ára gamall þegar myndbandið var tekið upp og þar má sjá hann þefa af hári stúlkunnar, faðma hana að sér og kyssa hana um hálsinn áður en hann spyr hvað hún er gömul. Þegar hún segist vera sautján ára tryllast áhorfendur og reynir Drake að bjarga sér fyrir horn.
„Ég er ekki tilbúinn til að fara í fangelsi“ segir hann. „Ertu virkilega sautján ára? Og þú lítur svona út? Ég veit ekki hvort ég eigi að finna fyrir samviskubiti eða ekki en ég skemmti mér samt.“
Þá bætir hann við að hann hafi kunnað að meta hvernig barmurinn á henni straukst upp að brjóstkassanum hans. Í kjölfarið á því kyssir hann hönd stúlkunnar, kinnarnar, enni og varir.
Myndbandið má sjá að neðan.
drake kisses underage girl, learns she’s underage, then kisses her again but this time feels her breasts pic.twitter.com/oLkxZccHiS
— SPOOK GOD ALLAH (@thespookgod) January 4, 2019
Fólk á samfélagsmiðlum hefur tekið fram að tímasetning myndbandsins sé afar óheppileg fyrir Drake.
Í fyrra var gefin út heimildarmynd um rapparann R. Kelly, sem ber heitið „Surviving R. Kelly“ en þar má finna um fimmtíu viðtöl við fórnarlömb rapparans, fjölskyldur þeirra og meðlimi úr innsta hring R. Kelly. Rapparinn var meðal annars sakaður um að hafa brotið kynferðislega á stúlku síðan hún var fjórtán ára gömul.
Einnig hefur mikið verið fjallað um vináttu hinnar 14 ára gömlu Stranger Things-leikkonu Millie Bobby Brown og Drake, sem er 32 ára í dag. Brown greindi frá því að hann gæfi henni meðal annars ráð varðandi stráka. „Ég sakna þín svo mikið,“ skrifaði Drake til Brown í september og hafa margir sett spurningarmerki við aldursmun meinta parsins og samband þeirra almennt.
Hér má finna brot af útreiðinni sem notendur Twitter hafa tjáð í garð Drakes eftir að myndbandið frá tónleikunum komst aftur í dreifingu.
Im so disgusted by his response after she said her age. No respect.
— ? (@VEXEDXX) January 5, 2019
i trust no man in the industry at this point cause wtf
— YOANNY (@YUCKSHEA) January 6, 2019
Being a teen girl means “preyed upon” is a state of being experienced to varying degrees at all times. No more. Or, in other words: Fuck you, Donald Trump, Woody Allen, Roman Polanski, Bill Cosby, R. Kelly, Drake, and all the rest. There is simply no room for you anymore.☠️?
— Lauren Duca (@laurenduca) January 6, 2019
That Drake video was disturbing because:
1) she visibly looked young
2) he grabs her breast after kissing her on the neck
3) he made a joke about going to jail (going to jail yet he said) after he found out she was 17
4) he then kissed her 3 more times.But get y’all shit off.
— Cultural Critic (@DapperDaddo) January 5, 2019
Drake is a whole entire piece of shit for this
After she reveals she is underage…„Why you look like that?“
„Awwww man I can’t go to jail!“
„I don’t know if I should feel guilty but I had a good time“
And talks about how good her breasts felt
??????? https://t.co/2P7od6XGku— Ketchup, Mustard, or Both?! (@FeministaJones) January 5, 2019