Margrét Erla Maack listakona og dansari segist hafa fyrirgefið Icelandair fyrir eina þá verstu áreitni sem hún hafi lent í frá þeim.
„Ein versta áreitni sem ég lenti í var boð á vegum Icelandair og þau hótuðu að borga mér ekki fyrir giggið því ég tjáði mig um það á blogginu mínu. Mörgum árum síðar fór ég í flugfreyjupróf en hafði veður af því að ég myndi aldrei koma til greina út af þessu atviki,“ segir Margrét Erla í nýlegri færslu sinni á Twitter og notar þar myllumerkið #vinnufriður. Myllumerkið fór fyrir stuttu á flakk um samfélagsmiðla þar sem íslenskar konur tjá sig um áreitni sem þær hafa orðið fyrir á vinnustað.
Ein versta áreitni sem ég lenti í var boð á vegum Icelandair og þau hótuðu að borga mér ekki fyrir giggið því ég tjáði mig um það á blogginu mínu. Mörgum árum síðar fór ég í flugfreyjupróf en hafði veður af því að ég myndi aldrei koma til greina út af þessu atviki. #vinnufriður
— margrét erla maack (@mokkilitli) January 18, 2019
Sjá einnig:Margrét Erla segir að Icelandair hafi bannað sig
Margrét greindi frá atvikinu í viðtali í fyrra. Sagði hún að Icelandair hafi fyrir 13 árum lagt blátt bann á að hún myndi skemmta í partíum fyrirtækisins vegna þess að hún hafi kvartað undan kynferðislegri áreitni eins starfsmanns.
„En! Mannauðsstjóri Icelandair hringdi nýlega í mig og bað mig afsökunar. Flestir sem komu að þessu fíaskói eru löngu hættir hjá fyrirtækinu og mig langar að trúa að kúltúrinn sé annar,“ skrifar Margrét í kjölfarið á færslunni.
En! Mannauðsstjóri Icelandair hringdi nýlega í mig og bað mig afsökunar. Flestir sem komu að þessu fíaskói eru löngu hættir hjá fyrirtækinu og mig langar að trúa að kúltúrinn sé annar.
— margrét erla maack (@mokkilitli) January 18, 2019
Má því álykta að á milli þeirra ríki sátt í dag, þrettán árum eftir að atvikið átti sér stað.