Fjöldi íslenskra kvenna hafa hrundið af stað herferð á Twitter undir myllumerkinu #vinnufriður. Þar lýsa þær þeirri kynferðislegu áreitni sem konur þurfa oft að þola meðan þær sinna vinnu sinni.
Sögurnar eru misjafnar og lýsa allt frá ósmekklegum ummælum viðskiptavina yfir í gróft kynferðislegt ofbeldi. Hér fyrir neðan má lesa nokkrar slíkar lýsingar.
Var hótað uppsögn þegar ég vann á vinsælum veitingastað í 101 af því ég daðraði ekki nógu mikið við viðskiptavini og annan eiganda staðarins (þann sem hótaði mér uppsögninni), hinn eigandinn var nýbúinn að segja mér að ég væri einn duglegasti þjónninn á staðnum #vinnufriður
— Tinna Eik (@tinna_eik) January 17, 2019
Kveið því alltaf að fara í vinnuna um helgar þegar er var þjónn því ég vissi að ég yrði klipin í rassinn og fengi extra óviðeigandi komment þegar gestir voru í glasi #vinnufriður
— Kolfinna Tómasdóttir (@KolfinnaT) January 16, 2019
Í afgreiðslustarfi var mér sagt að ef ég klæddist aðeins flegnari bolum yrðu kúnnarnir ánægðari. Ég var 14 ára. #vinnufriður
— Kolfinna Tómasdóttir (@KolfinnaT) January 16, 2019
Ég fitnaði og samstarfsfélagi sagði í vinnunni að það væri allt í lagi því brjóstin mín væru þá stærri, svo kleip hann í það hægra. #vinnufriður
— Kolfinna Tómasdóttir (@KolfinnaT) January 16, 2019
Annar sagði ekkert en horfði upp á þetta. Kemst að því að vinkona mín lenti líka í aðal gæjanum (mun verra reyndar) og við kvörtum. Vorum ekki fyrstar, né aðrar til að kvarta. Afleiðing: fékk ekki að koma á vaktina okkar lengur en sú regla gleymdist svo… #vinnufriður
— Anna Berglind Jónsd. (@annaberglindj) January 16, 2019
20 ára. Viðskiptavinur reyndi að kyssa mig á munninn fyrir góða þjónustu í afgreiðsustarfi sem ég var í á þeim tíma. Djöfull leið mér illa #vinnufriður https://t.co/jNTxX8JGUd
— Snæfríður Jónsdóttir (@snaefridurjons) January 16, 2019
Vann í útivistafatabúð og var beðin af kúnna að máta úlpu fyrir hann sem hann ætlaði að gefa konunni sinni. Hann sagðist óska þess að ég væri að vinna í sundfataverlsun og að ég væri að máta fyrir hann bikiní. #vinnufriður
— Vala Magnúsdóttir (@valarun1) January 16, 2019
Í fatabúðinni er líka krafa á að við spyrjum opinna spurninga eins og t.d. ,,Hvað get ég gert fyrir þig?” og oftar en einu sinni hef ég fengið svarið: ,,Bara hvað sem er?” og perraglott fylgir. #vinnufriður
— Vala Magnúsdóttir (@valarun1) January 16, 2019
Þegar ég braut júniformreglur flugfélagsins í hverju einasta flugi því ég skipti úr hælum í flatbotna skó FYRIR flugtak en ekki eftir það. Snýst um öryggi. #vinnufriður
— Ragna Bjarnadóttir (@ragnabjarna) January 17, 2019
Gott að minna sig á að #vinnufriður tengist ekki bara óþægilegum viðskiptavinum. Gamli yfirmaðurinn talaði um hvað það væri erfitt að vinna í kringum mig því hann væri með svo mikla "þynnkugreddu" að hann gæti ekki horft á mig.
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) January 17, 2019
Þegar ég vann í kjötborði og viðskiptavinur sagði mig vera „girnilegasta kjötstykkið sem við byðum upp á“ #vinnufriður
— Eydís Blöndal (@eydisblondal) January 17, 2019