Nýliðin helgi gekk misvel hjá fólki en svo virðist sem söngkonan Salka Sól Eyfeld hafi átt þær betri. Á Twitter greinir hún frá hrakförum sínum en þar kemur fram að kvensjúkdómalæknir hennar hafi slegið hana út af laginu.
Ósköp Sölku hófust á karlakvöldi. „Var að syngja á karlakvöldi og á fremsta bekk sat kvensjúkdómalæknirinn minn og það stuðaði mig svo mikið að gleymdi textanum og fór að syngja bara bull,“ segir Salka.
Óheppni hennar var þó ekki lokið. „Svo kveikti ég í hárinu á mér á veitingastað áðan, en þá með freknur framan í mér eftir Ronju sýningu. Góð helgi,“ segir Salka.
Var að syngja á karlakvöldi og á fremsta bekk sat kvensjukdómalæknirinn minn og það stuðaði mig svo mikið að gleymdi textanum og fór að syngja bara bull. Svo kveikti ég í hárinu á mér á veitingastað áðan ennþá með freknur framan í mér eftir Ronju sýningu. Góð helgi.
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) January 13, 2019