Bleikt bendir á að þetta er ekki frétt og að eftirfarandi atburðir gætu ekki hafa gerst:
Lögreglumaður stöðvaði konu fyrir að keyra of hratt. Hann bankaði á gluggann hennar og bað hana um ökuskírteini:
„Ég á ekkert svoleiðis,“ sagði konan. Hann bað hana þá um skráningarskírteini og konan svaraði:
Fyrirgefðu, ég get það ekki.
Lögreglumaðurinn spurði af hverju og konan svaraði róleg:
Ég nefnilega stal þessum bíl.
Hann varð taugaóstyrkur og leitaði að piparúðanum sínum: „Stalstu bílum?“
Já, og ég myrti eigandann. Hann er í skottinu.
Lögreglumaðurinn hljóp í bílinn sinn og kallaði eftir hjálp.
Á nokkrum mínútum var sérsveitin komin, sjúkrabíll og maður með gjallarhorn sem kallaði til hennar, hún svaraði:
Er eitthvað vandamál?
Lögreglustjórinn sagði:
Já, þú varst að segja að þú hafir myrt mann og sért með hann í skottinu!
Hún klóraði sér í hausnum og opnaði skottið. Það var tómt.
Hún rétti þeim ökuskírteinið sitt og skráningarskírteinið.
Lögreglustjórinn sagði:
En þú sagðir við hann að þú hafir stolið þessum bíl og myrt eigandann.
Hún svaraði þá á móti:
Ég er alveg viss um að þessi lygamörður hafi líka sagt þér að ég hafi verið að keyra of hratt!