Söngkonan heimsfræga Céline Dion segist vera ánægð með útlit sitt þrátt fyrir að hafa verið harðlega gagnrýnd undanfarið vegna holdafars síns.
Céline hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika síðan í janúar árið 2016 þegar eiginmaður hennar René Angélil lést. People greinir frá því að fatasmekkur Céline hefur undanfarið breyst mikið og hefur hún verið gagnrýnd fyrir hann.
„Ég er ekki að reyna að taka neina sénsa, ég er að klæða mig svona fyrir mig. Mig langar að finnast ég vera sterk, falleg, kvenleg og kynæsandi,“ segir Céline um breytingar sínar á bæði líkama sínum og fatavali.
Céline hefur lengi talin vera grönn kona en nýlegar myndir af henni sýna að hún hefur greinilega lagt mikið af og breyttist fatastíll hennar í kjölfarið af þyngdartapinu.
„Ef þér líkar ekki við það, þá vil ég ekki tala um það. Slepptu því bara, ekki taka mynd. Ef þér líkar við þetta þá er ég til staðar, ef ekki þá látið mig í friði.“
Reglulega hefur sést til Céline með dansaranum Pepe Munoz þar sem þau hafa gengið hönd í hönd, faðmast og verið náin. Fljótlega fóru sögusagnir af stað um meint ástarsamband þeirra en neitar Céline þeim orðróm.
„Ég er á lausu. Fjölmiðlar hafa verið að greina frá því að það sé kominn annar maður í líf mitt síðan René lést. Já það er annar maður í lífi mínu en ekki maðurinn. Við Pepe náðum strax vel saman sem vinir og höfum gaman saman. Við erum vinir, bestu vinir. Auðvitað föðmumst við og höldumst í hendur. Ég meina, hann er herramaður. Hann gefur mér hönd sína þegar við erum úti. Mér er alveg sama af því að hann er myndarlegur og hann er besti vinur minn.“