fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Fór fimmtán ára í þungunarrof: „Út rann fóstrið með tilheyrandi dynki þegar það lenti í klósettinu – Á ég að sturta þessu niður?“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 29. janúar 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar ég var fimmtán ára gömul fór ég á útihátíð og datt í það. Ég hitti strák, fór með honum í tjald og svaf hjá honum án getnaðarvarna. Rúmlega tveimur sólarhringum síðar skrapaði ég saman klinki og keypti neyðarpilluna. Hana hafði ég tekið tvisvar sinnum áður og í bæði skiptin var liðinn minna en sólarhringur frá samförum. Í þessi tvö skipti virkaði neyðarpillan og ég byrjaði á túr stuttu síðar. Dagarnir liðu og ekkert bólaði á blóðinu.“

Svona hefst færsla konu sem treystir sér ekki að koma fram undir nafni á síðunni Narnia. Konan gaf Bleikt góðfúslegt leyfi til þess að fjalla um reynslu sína.

„Ég er og hef aldrei verið trúuð en eitt kvöldið fór ég á hnén fyrir framan rúmið mitt og bað til guðs. Ég bað til guðs um að ég væri ekki ólétt. Ég bað til guðs um að byrja á túr strax. Fljótlega varð það ljóst að ég þyrfti að taka óléttupróf. Ég pissaði á prikið heima hjá þáverandi vinkonu. Ég fór eftir leiðbeiningunum og beið í nokkrar mínútur. Ó MÆ GAT. Prófið var neikvætt. Ég var svo glöð. Ég var svo fegin. Ég valhoppaði heim með bros á vör.“

Líf hennar átti eftir að breytast til frambúðar

Eftir kvöldmat fór unga stúlkan aftur heim til vinkonu sinnar þar sem líf hennar átti eftir að breytast til frambúðar.

„Ég bankaði á hurðina og sekúndubroti seinna reif hún upp hurðina. Skelfingu lostin á svipinn með óléttuprófið í hendinni og gargaði á mig að prófið væri jákvætt. Mér leið eins og það hefði verið keyrt yfir mig. Hvernig gat þetta verið? Prófið hlaut að vera gallað. Eða hvað? Ég vissi að ég þyrfti að taka annað en innst inni vissi ég að þetta var satt. Ég var fimmtán ára krakki og ég var ólétt. Fokk. Hvernig gat ég látið þetta gerast?“

Segist hún hafa hugsað sig vel og vandlega um hvert næsta skref skyldi verða en er hún þó viss um það að hún hafi alltaf vitað það að hún myndi fara í þungunarrof.

„Genginn rúmlega sjö vikur á leið mætti ég upp á landspítala. Mér var gefin spítalaföt, rúm og verkjalyf. Biðin var löng og kvíðinn jókst. Loksins var komið og náð í mig. Mér var rúllað í lyftuna í spítalarúminu. Ég veit ekki hvort við fórum upp eða niður en þegar lyftan opnaðist leið mér eins og ég væri stödd í kjallara í miðri hryllingsmynd. Það var farið með mig inn á skurðstofuna, hjúkkan tók upp nál og ætlaði að svæfa mig. Lítil og hrædd, ég gjörsamlega fríkaði út og hljóp. Þetta var of mikið. Ég var ekki tilbúin í vera ólétt hvað þá fara í einhverja aðgerð.“

Heyrði þegar fóstrið lenti ofan í klósettinu

Eftir langt spjall var ákveðið að hún fengi pillur og stíla til þess að framkalla þungunarrof í staðin fyrir að fara í aðgerð.

„Um leið og ég vaknaði um morguninn setti ég stílana í leggöngin. Ég man ekki hvað leið langur tími þar til ég var komin með massífa túrverki. Ég stóð upp og fann það var eitthvað að koma út úr mér. Ég spennti vöðvann og hljóp inn á baðherbergi. Ég settist á klósettið og út rann fóstrið með tilheyrandi dynki þegar það lenti í klósettinu. Ég sat þarna stjörf og trúði ekki að þetta var að gerast. Eftir að hafa setið þarna og hugsað um hversu súrt þetta var í nokkrar mínútur stóð ég upp. Ég leit ofan í klósettið en sá ekkert fyrir blóði. Ég veit ekki hvort ég hefði höndlað það að sjá eitthvað. Ég starði ofan í klósettið í hálftíma, óviss um hvað ég ætti að gera. Þetta hefði geta verið barn. Hvað á ég að gera? Á ég að sturta þessu niður?“

Segist hún aldrei vilja þurfa að ganga í gegnum slíka þolraun aftur en að ákvörðunin hafi þó án efa verið með þeim bestu sem hún hafi tekið í lífinu.

„Ég mun aldrei sjá eftir þessu. Ég sé að sjálfsögðu eftir því að hafa ekki komið í veg fyrir þetta til að byrja með. Ég sé eftir því að hafa ekki verið ábyrg með getnaðarvarnir. Ég sé eftir því að hafa byrjað að stunda kynlíf þegar ég var augljóslega ekki með þroska í það.“

Pistlahöfundar Narnia eru á Snapchat: narnia.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk
433
Fyrir 14 klukkutímum

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.