Snapparaparið Ingólfur Grétarsson(goisportrond) og Tinna Björk Kristinsdóttir(tinnabk) sem vakið hafa mikla lukku á miðlinum Snapchat eiga von á sínu fyrsta barni í ágúst.
Fyrir á Tinna eina dóttur úr fyrra sambandi og tilkynnti parið um stækkun fjölskyldunnar á Instagram.
„Eintóm hamingja framundan. Stóra systir skríkir af gleði og er hvað spenntust fyrir bleyjuskiptum,“ segir Tinna meðal annars við myndina.
Bleikt óskar parinu til hamingju með stækkun fjölskyldunnar.