fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Sögu fannst hún bregðast dóttur sinni: „Ég fann fyrir mikilli pressu að hafa hana áfram á brjóstinu“

Aníta Estíva Harðardóttir
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Saga Haraldsdóttir var ófrísk af dóttur sinni eyddi hún miklum tíma í það að skoða ráð fyrir komandi brjóstagjöf og velti því fyrir sér hvernig hún gæti látið hana ganga sem best.

„Það kom mikill kvíði yfir mig alla þegar ég hugsaði um brjóstagjöfina því hvað ef litla gullið mitt vildi ekki taka brjóstinu?“

Fyrstu dagar brjóstagjafarinnar voru þeim mæðgum erfiðir. Dóttir Sögu tók brjóstinu illa, framleiðsla mjólkurinnar var of mikil og vegna þess kafnaði Ólafía, dóttir hennar í hvert skipti sem hún fór á brjóst.

„Ég fékk svo á fimmta degi stálma og þurfti að pumpa mig. 150ml úr einu brjósti takk fyrir kærlega! Eftir það gekk allt eins og í sögu, þetta var svo yndisleg og notaleg stund sem við áttum saman. Hún fékk ábót á kvöldin svo hún svæfi betur, hún vaknaði einu sinni yfir nóttina um fjögur leitið og fékk brjóst og yfir daginn var hún bara á brjósti.“

Mátti ekki gefa dóttur sinni brjóst

Þegar Ólafía var um tveggja mánaða gömul fékk Saga nýrnasteina og var hún flutt upp á heilsugæslu suðurlands með sjúkrabíl. Dóttir hennar var á meðan í pössun hjá frænku sinni en Saga var í engu ástandi til þess að hugsa um hana vegna verkja.

„Á spítalanum var dælt svoleiðis verkjalyfjunum í mig, ég mátti þá ekki gefa henni brjóst aftur fyrr en tuttugu og fjórum klukkutímum seinna. Ég bað um að fá að fara upp til ljósmóðurinnar til þess að fá að pumpa mig en ég þurfti að bíða svo lengi eftir því að fá mjaltavélina, ég átti sjálf ekki pumpu en reyndi eins og ég mögulega gat að handpumpa mig. Eftir þessa tvo daga fór mjólkin minnkandi hjá mér.“

Þegar Saga fékk að fara heim af spítalanum reyndi hún allt sem hún gat til þess að halda brjóstagjöfinni áfram en allt kom fyrir ekki.

„Ég reyndi töflur, jurta te og heita drykki, leggja hana oftar á brjóstið, pumpa þegar hún var búin á brjóstinu en ekkert virkaði. Ég fann fyrir mikilli pressu að hafa hana áfram á brjóstinu því jú „brjóstið er best“. Ólafía var hætt að vilja taka brjóstinu og varð pirruð í hvert skipti sem ég reyndi að leggja hana á brjóstið, enda var hún ekki að fá neina mjólk. Ég var sár, mér fannst eins og mér hafi mistekist og brugðist okkur báðum, því ég hafði planað að hafa hana á brjósti í allavega sex mánuði.“

Gafst upp og varð sorgmædd

Saga man vel eftir síðasta skiptinu sem dóttir hennar fór á brjóst.

„Ég reyndi og reyndi að leggja hana á en hún öskraði og öskraði þar til ég gafst loksins upp og gaf henni pela. Eftir að hún var sofnuð pumpaði ég mig, það komu um 20ml úr báðum brjóstunum, þarna ákvað ég að hætta og skipta yfir í pela.“

Segir Saga í færslu sinni á Mæður að það hafi reynst henni virkilega erfitt að hætta með dóttir sína á brjósti.

„Mér leið í nokkra daga eins og ég hafi misst þessa fallegu stund sem við áttum saman og að ég myndi aldrei ná að tengjast henni eins vel og ég gerði. Ég hugsaði oft að kannski hefði ég átt að reyna aðeins lengur, aðeins betur, prufa aðeins meira eða kannski hlusta á næsta ráð.. það hefði kannski gengið upp.“

Þegar Saga sá svo framþróun dóttur sinnar hætti hún að vera sorgmædd enda stækkaði hún loksins almennilega og fór að líða betur.

„Í fyrsta skiptið var hún ekki rétt svo hangandi í þyngdinni sem hún átti að vera í eða rétt svo fyrir neðan. Hún fór að sofa heilar nætur, var hætt að væla eins mikið því hún var loksins að fá nóg að drekka. Það gerði mig svo hamingjusama að sjá hana líða svona vel. Ég vildi auðvitað að við hefðum geta átt lengri tíma saman á brjósti en ég reyni frekar að vera þakklát fyrir að hafa fengið þessa þrjá mánuði með henni, því brjóstagjöf er alls ekki sjálfsagður hlutur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Endar Murk-Krissi á Bessastöðum?

Endar Murk-Krissi á Bessastöðum?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“