fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

65 ára maður reiddist á biðstofunni: „Það er eitthvað að typpalingnum mínum“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fátt er eins pirrandi og móttökuritari hjá lækni sem ætlast til að maður segi frá hvað amar að manni fyrir framan fulla biðstofu af fólki. Þetta þekkja flestir en þessi gamli maður sem við segjum frá núna meðhöndlaði vandamálið á eftirminnilegan hátt.

Þannig hefst skemmtisaga sem aldrei átti sér stað. Á Bleikt er birt slíkt efni endrum og eins lesendum vonandi til skemmtunar.

Sextíu og fimm ára gamall maður gekk inn á yfirfulla biðstofu og að ritaraborðinu.

Ritarinn sagði:

Hvers vegna þarft þú að hitta lækninn í dag, herra minn?

Hann svaraði að bragði:

 Það er eitthvað að typpalingnum mínum.

Þetta gramdist ritaranum og hún sagði:

 Þú átt ekki að segja svona lagað upphátt á fullri biðstofu.

,,Hvers vegna ekki? Þú spurðir mig hvað væri að og ég svaraði“, sagði gamli maðurinn reiðilega.

Ritarinn sagði:

„Núna ertu búinn að láta alla á biðstofunni fara hjá sér. Þú hefðir átt að segja eitthvað á borð við að þér væri illt í eyranu og svo ræða málið nánar við lækninn þinn.“

Gamli maðurinn sagði þá önugur á móti að hún ætti þá auðvitað ekki að spyrja fólk spurninga sem væru þannig að svörin við þeim gerðu alla vandræðalega! Hann þrammaði síðan út af læknastofunni og kom inn aftur mörgum mínútum síðar.

Móttökuritarinn brosti, ánægður að sjá að gamli maðurinn hefði meðtekið það sem hafði sagt og spurði hvert væri erindið.

„Það er eitthvað að eyranu mínu“, sagði gamli maðurinn.

„Og hvað er að eyranu þínu?“ spurði ritarinn.

„Ég get ekki pissað með því!“ sagði gamli maðurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.