Sífellt færist í vöxt að fólk seti sér það nýársheit að sleppa áfengisneyslu í janúarmánuði. Það gildir ekki bara um Íslendingar heldur út um allan heim. Þannig er áætlað að um 5 milljónir Breta muni freista þess að vera „þurrir“ í janúarmánuði. Ný bresk rannsókn bendir til þess að ávinningurinn af slíku heiti sé mikill. Vísindamenn við Háskólann í Sussex framkvæmdu rannsókn með þeirra sem slepptu áfengi í janúar í fyrra. Alls fylgdust vísindamennirnir með 816 einstaklingum og lögðu fyrir þá spurningalista í byrjun síðasta árs, fyrstu vikuna í febrúar og síðan annan í ágúst sama ár.
Niðurstöðurnar voru á þá leið að áfengisbindindið í janúar hafði mikil áhrif út árið. Þannig drukku þátttakendur einum degi sjaldnar í viku en fyrir bindindið, 3,3 daga eftir bindindið en 4,3 daga fyrir. Þegar þátttakendur drukku þá drukku þeir einnig færri drykki eftir átakið, annarsvegar 8,6 áfengiseiningar fyrir bindindi og 7,1 einingu að því loknu.
Ávinningurinn var einnig sá að níu af hverjum tíu þátttakendum sparaði peninga, sjö af tíu sváfu betur og sex af hverjum tíu léttust. Þá sagðist helmingur þátttakenda hafa tekið eftir því að húð þeirra væri í betra ástandi.
Þátttakendur upplifðu einnig ýmsar aðrar jákvæðar breytingar, til dæmis sögðu 76% að þeir hefðu komist betur í skilning um hvenær og af hverju þeir drykkju áfengi og 71% fólks sagðist hafa lært að það væri hægt að skemmta sér án áfengis.
Þá er um að gera að hefja slíkt átak því áhrifin eru jákvæð þó að maður falli á bindindinu. „Það var athyglisvert að þessar jákvæðu breytingar, voru einnig sýnilegar meðal þeirra sem tóku þátt en náðu ekki að vera áfengis út janúarmánuð. Breytingarnar voru minni en mjög greinilegar. Það er því greinilegt að það er gott að taka þátt í slíku átaki,“ sagði Dr. Richard de Visser sem fór fyrir rannsóknarteyminu.