Ljósmyndasamkeppnin #betraloftslag er nú í fullum gangi, en hún er haldin í tilefni þess að loftlagsgangan verður gengin frá Hallgrímskirkju á laugardaginn klukkan tvö.
„Markmið keppninnar er að gera loftlagshegðun annarra sýnilegri, skapa tengingar á milli fólks, deila fræðslu, og rjúfa með því einangrun fólks í loftlagsbaráttunni,“ segir Gró Einarsdóttir sem er í forsvari fyrir gönguna í samtali við Bleikt.
„Ljósmyndirnar sýna ýmsar tillögur að því hvernig við getum lagt hönd á plóg að betra loftslagi. Nú þegar hafa nærri 200 manns tekið þátt, enda vænlegir vinningar í boði. Eina sem þarf til að taka þátt er að taka myndir af einhverju sem tengist lífsstíl að betra loftslagi eða hefur hvetjandi áhrif í baráttunni við loftslagsbreytingar – og merkja þær með myllumerkinu #betraloftslag á Instagram eða Facebook.“
Á myndunum sem þegar hafa tekið þátt má sjá fjölbreyttar tillögur: Börn sem læra frá unga aldri að taka strætó, hjóla og týna rusl. Fólk sem gengur, hjólar, eða tekur strætó. Fólk sem kolefnisjafnar eða styrkir græn samtök. Fólk sem les sér til um málefnið. Fólk sem borðar umhverfisvænan mat eða kaupir umhverfisvænar vörur.
https://www.instagram.com/p/Bmn2AHan77m/?utm_source=ig_web_copy_link
„Hægt er að taka þátt í keppninni fram að því að loftlagsgangan byrjar þann 8. september. Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sæti og einnig 3 aukavinningar.“
Spessi Hallbjörnsson ljósmyndari, Ísold Uggadóttir kvikmyndagerðarkona og Auður Annu Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri Landverndar eru dómarar keppninnar. Skipuleggjendur loftlagsgöngunnar, Samtök um bíllausan lífsstíl, Plastlaus september, Vegan samtökin, og Samtök grænmetisæta standa að keppninni.
„Ýmsir möguleikar eru að lífsstíl að betra loftslagi. Við mælum með:
– Samgöngumátum sem krefjast lítils útblásturs.
– Einföldum lífsstíl án óþarfa neyslu.
– Endurnýtingu og endurvinnslu.
– Plastlausum lífsstíl.
– Grænkeralífsstíl.
– Innlendri framleiðslu.
– Styrkja samtök sem auka skóga.
– Styrkja samtök sem endurheimta votlendi.
– Ræða um lífsstíl að betra loftslagi og loftslagsbreytingar.
– Krefja yfirvöld og fyrirtæki um aðgerðir sem sporna við loftslagsbreytingum.“
Á viðburði Loftslagsgöngunnar er að finna dagskrá vikunnar 1. – 8. september og frekari upplýsingar um keppnina og gönguna sjálfa.