Það er enn til það fólk sem hefur ekki enn áttað sig á því að kynferðisofbeldi er aldrei þolandanum að kenna. Það er enginn sem biður um það að lenda í kynferðisofbeldi, það er ávallt sök gerandans.
Þolandaskömm er því miður enn til staðar og hefur það slæm áhrif á alla þá sem hafa lent í og koma til með að lenda í kynferðisofbeldi. Alice Brine, uppistandari frá London skrifaði á dögunum færslu sem Bored Panda endurbirti. Í þeirri færslu gerir hún vel grein fyrir því hversu fáránlegt það er í raun og veru að kenna þolanda um þá hörmung sem hann hefur lent í. Fyrir neðan má lesa stöðuuppfærslu Alice í heild sinni:
„Ég ætla nú að byrja á því að fara heim með hvaða ofurölvi karlmanni sem er og stela öllu dótinu þeirra. Það verður þó ekki mér að kenna… Þeir voru svo fullir. Þeir hefðu átt að vita betur. Ég mun komast upp með þetta í um 90% tilfella og í þau örfáu skipti sem einhver hugrakkur karlmaður mun ákveða að kæra mig fyrir þjófnað þá verða rök mín þau að ég var einfaldlega ekki viss um að hann hafi sagt „nei ekki stela Audi-inum mínum,“ Ég var bara ekki viss um að hann meinti það. Ég sagði kannski við hann „plís má ég stela Gucci úrinu þínu?“ Hann sagði nei en ég bara var ekki alveg viss um að hann meinti það. Hann var svo drukkinn. Hann kallaði þetta yfir sig sjálfur. Þið hefðuð átt að sjá hvernig hann var klæddur í bænum, rándýrri skyrtu og skóm. Hvaða skilaboð var hann að senda með því?! Ég hélt að hann vildi að ég kæmi og stæli öllu dótinu hans. Hann var að biðja um það. Þegar hann sagði nei við mig, að ég ætti ekki að taka allt dótið hans þá bara var ég ekki viss um að hann meinti það. Nei er ekki nógu hlutlægt orð, það gæti þýtt hvað sem er.“