Nú er vetur konungur farinn að banka upp á eftir þetta „dásamlega“ sumar og kominn tími þar sem húðin fer að verða þurr og leiðinleg. Þá er besti tíminn til að gera vel við sig, kveikja á kertum og setja á sig maska. En hvað ef þú átt ekki til maska og nennir ekki út í búð? Ég er með lausnina, heimagerðir andlitsmaskar!
Undirbúningur húðar
Áður en þú ætlar að skella þér í það að setja á þig maska þá verðurðu að undirbúa húðina til þess að húðin taki sem best við maskanum, því annars geturðu alveg eins sleppt þessu.
1. Hreinsa húðina (hreinsimjólk/ froða)
2. Skrúbba húðina
3. Tóner/andlitsvatn
Maski 1
1/2 Avacado(stappa vel eða setja í blandara)
2 tsk. Hunang
1/2 tsk. Kókosolía
Maski 2
1-2 bitar af banana
1 tsk. Hunang
1 tsk. Ólífuolía
Maski 3
2 tsk. Púðursykur
1-2 tsk Ólífuolía
Maski 4
1 tsk. Aloe vera
2 sneiðar agúrka (stappa vel eða setja í blandara)
Aðferð: Hrærið hráefnum saman í skál, ath. betra að hafa aðeins of mikið heldur en of lítið. Smyrjið á ykkur með pensli eða hreinum höndum.
Látið maskann vera á í 10-15 mín.
Skolið af með vatni og þvottapoka. Farið yfir andlitið með bómullarskífum með toner/andlitsvatni í og setjið svo á ykkur gott andlitskrem sem hentar ykkar húð.
Um að gera að skoða líka bara hvað er til í skápunum og „googla“ það hvað það gerir fyrir húðina.
Flest matvæli er hægt að nota í andlitsmaska, mér finnst þetta alveg frábært og nýti oft matvæli sem ég kemst ekki yfir að borða áður en það verður ónýtt í andlitsmaska.
Færslan er skrifuð af Agnesi og birtist upphaflega á Vynir.is