Myndin „Konan mín og tengdamóðir mín“ er ein af elstu sjónhverfingum heimsins en nýleg rannsókn hefur komist að því að hvað þú sérð á myndinni getur ráðist algjörlega á aldri þínum.
Það er nokkuð auðvelt að sjá báðar myndirnar þegar þú veist hvað er á þeim en þegar rannsóknin, sem gerð var í Ástralíu og Indy greindi frá, var framkvæmd fengu þátttakendurnir einungis að sjá myndina í hálfa sekúndu áður en þau áttu að segja til um hvað þau sæju.
Yngri þátttakendur rannsóknarinnar voru líklegri til þess að sjá unga konu sem horfir til hliðar en þeir eldri eru líklegri til þess að sjá gamla konu sem horfir beint áfram.