fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Guðbjörg missti 20 kíló með langveikt barn: „Ég mætti á hverjum degi með dóttur mína sem var bundinn við súrefni allan sólarhringinn“

Mæður.com
Mánudaginn 24. september 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að koma sér í form eftir meðgöngu eða nei, bara í form yfir höfuð getur verið virkilega erfitt bara. Ég var í rúma 9 mánuði að koma mér í mitt drauma form eftir meðgöngu svo ég veit hvað ég er að tala um!

Það eru liðnir 5 mánuðir frá fæðingu Kristelar, ég hef misst 10 kíló og held ótrauð áfram.

Dóttir Guðbjargar, Anja.

Að stíga inn í ræktarsal getur verið yfirþyrmandi og ógeðlega erfitt (bíddu aðeins þetta verður betra) ekki hætta að lesa alveg strax.

Ég var í 9 mánuði að losa mig við rúm 20 kíló. Ég byrjaði þegar að við fjölskyldan bjuggum uppi á barnaspítala Hringsins með eins árs gömlu dóttur okkar, sem var að berjast við ólæknandi lungnasjúkdóm (er við héldum á þeim tíma). Anja veiktist í enda september 2015 (þá féll hún í mettun í fyrsta skiptið). Með hverjum deginum hrakaði Önju Mist og gáfust lungun svo upp á endanum og dvaldi hún í öndunarvél í rúman mánuð samanlagt. Blessunarlega séð losnaði Anja úr öndunarvélinni 24. desember og í lok þess mánaðar kvöddum við gjörgæsluna og héldum við niður á barnadeild.

1. janúar tók ég þá ákvörðun að snúa við blaðinu og breyta umlífsstíl. Þarna vorum við búin að dvelja upp á barnaspítala í fjóra mánuði og þegar að ég tók þess ákvörðun áttum við eftir að dveljaupp á spítala í þrjá mánuði í viðbót, úti og hér heima.

Ég missti fyrstu 9 kílóin á þessum þremur mánuðum sem var mikill sigur. Ég veit vel hvernig það er að koma sér í form undir álagi sem er ekkert grín og getur tekið svakalega á en taktu það frá mér: ÞETTA ER HÆGT!

Með hverjum deginum sem leið varð þetta skemmtilegra og SKEMMTILEGRA, þetta hætti að vera eitthvað sem ég varð að gera (ég er þar núna) og varð með tímanum mín ástríða.

Ég var það hungruð í bætingar að ég mætti á hverjum degi með dóttur mína sem var bundinn við súrefni allan sólarhringinn. Ég tók súrefniskútinn bara með og bar hann á bakinu. Hversu mikið ert þú tilbúin til þess að leggja á þig til þess að ná þínum markmiðum?

Engar áhyggjur ég er á þeim stað núna að ég  þarf hvatningarræðu frá manninum mínum í hvert skipti sem ég ætla mér að vakna í ræktina.
Ræktin er í göngu færi svo ég hef í rauninni enga ástæðu til þess að mæta ekki.

„Vertu sterkari en afsakanir þínar“

Þetta var mitt mottó og ætla ég að tileinka mér þetta í þessu skemmtilega ferðalagi!

En jæja þú ert væntanlega að lesa þennan pistil til þess að fá smá hvatningu og spark í rassinn, ekki satt ?
Ef svo er vil ég hvetja þig til þess að lesa lengra!

Hér koma nokkur lykilatriði sem hjálpuðu mér að komast í mitt draumaform

  • Númer 1,2, OG 3 er rútína, skipulag og markmiðasetning. Þú kemst ekkert án þess mín kæra.
  • Settu þér viku, skammtíma og langtíma markmið
  • Tímasettu þig!
  • Markmiðin þurfa að vera RAUNHÆF
  • Skrifaðu þau niður. Hvar sérðu þig fyrir þér eftir mánuð? 6 mánuði? Ár?
  • Breyttu um hugarfar, það er auðveldara en þú heldur. Byrjunin er erfiðust!
  • Þetta er engin skilda! EN ég fór ekki að ná almennilegum árangri  fyrrr en ég fékk mér þjálfara!
  • Borðaðu eins hreina fæðu og þú mögulega getur (ég á samt mína nammi daga).
  • Trylltur laga listi
  • Ég tek inn fæðubótarefni
    T.d. Prótein, Glutalin, Hi energy fat burner svo eitthvað sé nefnt, fæðubótarefni er val að sjálfsögðu og gott að hafa það á bak við eyrað að þetta er fæðubót sem kemur ekki í stað fæðu.
  • Og svona rétt í lokin ræktarkort

Einhvers staðar las ég að markmið eru eldsneytið í ofni afrekanna, en manneskja án markmiða er eins og skip án stýris.
Þeir sem læra að setja sér markmið og vinna eftir þeim geta afkastað meiru á einu til tveimur árum en margir gera á heilli ævi.

Þetta á við um allt, ekki einungis fólk sem er að koma sér í form!

Ég mun skrifa nýja færslu um leið og settu markmiði er náð og leyfa ykkur svolítið að fylgjast með. Þetta er bæði hvatning fyrir sjálfa mig og aðra. Þið getið fylgst með mér á snappinu mínu gudbjorghrefna og hafið þetta ferðalag með mér!

Færslan er skrifuð af Guðbjörgu Hrefnu og birtist upphaflega á Mæður.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
EyjanFastir pennar
Fyrir 10 klukkutímum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.